Stórveisla á 40 ára kaupstaðarafmælinu Marín Manda skrifar 9. apríl 2014 10:00 Ásgerður Halldórsdóttir „
Ég held að þetta verði mjög skemmtilegur dagur því það er mikil stemning í bæjarfélaginu bæði meðal íbúa og starfsmanna. Allir aldurshópar munu taka virkan þátt í afmælisgleðinni, hvort sem það eru leikskólabörn eða eldri borgarar,“ segir Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, sem mun flytja ávarp í dag í tilefni af að nú eru 40 ár síðan Seltjarnarnes öðlaðist kaupstaðarréttindi. „Það er einnig mikil ánægja meðal bæjarbúa að útilistaverkið Skyggnst á bakvið tunglið eftir Sigurjón Ólafsson verði afhjúpað í hádeginu í dag. Verkið var fjarlægt um tíma þegar World Class-stöðin var byggð en verður nú sett upp að nýju,“ segir Ásgerður. Það má með sanni segja að Seltjarnarnesbær fari í afmælisbúninginn í dag og tímamótunum verður fagnað með fjölbreyttum viðburðum. Fyrirtæki og stofnanir á Seltjarnarnesi bjóða ókeypis aðgang, afslátt, kynningar og tilboð og opna dyr sínar fyrir gestum. Skólastarf verður jafnframt með óhefðbundnum hætti. Aðalveisluhöldin verða á milli kl. 17 og 19 með mikilli afmælishátíð á Eiðistorgi en boðið verður upp á afmælistertu og forsetahjónin munu heiðra bæjarbúa með nærveru sinni.„Það er óhætt að segja að það verður mikið fjör og mikið gaman. Jóhann Helgason flytur lagið, Seltjarnarnes sem hann samdi þegar hann var kjörinn bæjarlistamaður Seltjarnarness á sínum tíma og eldri bekkingar grunnskólans flytja atriði úr Bugsey Malone þar sem þau syngja og dansa.“ Á heimasíðu bæjarins, www.seltjarnarnes.is, er að finna þétta skemmtidagskrá með fjölbreyttum viðburðum sem bæjarbúar og velunnarar geta notið í dag.
Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Sjá meira