Eiga mjög erfitt með að sleppa Urði Ólöf Skaftadóttir skrifar 9. apríl 2014 13:44 GusGus og Urður Fréttablaðið/AntonBrink
Hljómsveitin GusGus gefur út nýja plötu þann 23. júní, en sveitina skipa Birgir Þórarinsson, Högni Egilsson, Stephan Stephansen og Daníel Ágúst Haraldsson. Platan heitir Mexico og er áttunda plata sveitarinnar. „Við vorum alltof lengi að vinna að þessari plötu,“ segir Birgir, betur þekktur sem Biggi veira, léttur í bragði. „Menn voru að vinna að ýmsu öðru, Stebbi fór í skútuferðalag og Högni gerði sólóplötu. Þannig að þetta tók tíma í almanakinu og það tekur svo sem alltaf tíma að melta svona verk. En í ferlinu varð líka mikið til sem fer ekki á plötuna,“ útskýrir Biggi.Urður Hákonardóttir, fyrrverandi söngkona GusGus, syngur eitt lag á plötunni. „Við eigum mjög erfitt með að sleppa Urði. Mér þykir svo vænt um að heyra röddina hennar,“ heldur hann áfram. Aðspurður segir Biggi engar miklar breytingar í vændum frá sveitinni. „Það urðu engar stökkbreytingar, en við vorum að leika okkur með nýja hluti og það sem okkur finnst skemmtilegt, og mér finnst það hafa komið vel út.“ Síðasta plata GusGus, Arabian Horse, kom út árið 2011. „Platan varð gríðarlega vinsæl, þannig að menn ákváðu að vera ekki neitt sérstaklega stressaðir eða of metnaðarfullir í því að næsta plata yrði að vera eitthvert kraftaverk. Við gerðum bara það sem okkur finnst skemmtilegt að gera sem er að búa til tónlist.“
Mest lesið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Lífið samstarf Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira