Innlent

Fjölskyldustefna þarf að fanga margbreytileikann

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, mun opna málþingið.
Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, mun opna málþingið.
Velferðarvaktin stendur fyrir málþingi á morgun um margbreytileika fjölskyldugerða þar sem meðal annars verður rætt hvort opinber fjölskyldustefna taki mið af fjölbreytilegum fjölskylduformum.

Málþingið er haldið í samstarfi við velferðarráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti, Heimili og skóla, Kennarasamband Íslands og Félag stjúpfjölskyldna.

Lára Björnsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar, mun opna málþingið.

„Það hafa orðið gífurlegar breytingar á íslensku samfélagi á undanförnum áratugum. Fjölskyldur eru orðnar mun flóknari og það snertir okkur öll, afa og ömmu og stórfjölskyldu.“

Lára segir mikilvægt að einstaklingar séu ekki skilgreindir út úr fjölskylduforminu.

„Fjölskyldan er gríðarlega mikilvæg fyrir allar manneskjur og margbreytileikinn er góður. Nú eru til dæmis margir einhleypir sem kjósa að búa einir og því er spurning hvort ætti að tala um heimili í stað fjölskyldna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×