Segja bæjarstjórann fara vísvitandi með rangar tölur Kristjana Arnarsdóttir skrifar 16. janúar 2014 18:55 Fréttablaðið/Vilhelm
Fulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi harma gífuryrði Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra Kópavogsbæjar, vegna nýlegrar ákvörðunar bæjarstjórnar að koma með virkum hætti að leigumarkaði í bænum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar. Í tilkynningunni segir að bæjarstjóri fari vísvitandi rangt með tölur og að hann hafi birst í flestum fjölmiðlum landsins með upphrópanir og þannig talað niður lánshæfismat bæjarins. Slíkt sé mjög alvarlegt hjá bæjarstjóra sem hefur þeim lögbundnu skyldum að gegna að framfylgja ákvörðunum bæjarstjórnar.„Með nýlegu samþykki bæjarstjórnar er hafin vegferð sem mun ekki kosta bæjarsjóð 3 milljarða eins og bæjarstjóri hefur blásið upp, hér er um að ræða kaup á félagslegu húsnæði 30 – 40 íbúðir sem mun dreifast á lengri tíma ásamt byggingu tveggja fjölbýlishúsa sem verða ekki af þeirri stærðargráðu sem bæjarstjóri nefnir. Hér er um að ræða viðbrögð við brýnni þörf og neyð á húsnæðismarkaði.Nú þegar liggja fyrir útreikningar sem sýna að verkefni af þessu tagi mun ekki hafa neikvæð áhrif á rekstur bæjarsjóðs, því leigutekjur munu standa undir rekstrarkostnaði. Aðkoma bæjarins að þessu verkefni er tímabundin og hér er um að ræða fjárfestingu sem að sjálfsögðu er eignfærð og bæjarsjóður mun ná markmiði um skuldahlutfall innan lögbundins tímaramma. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs hefur með yfirlýsingagleði sinni og gífuryrðum síðastliðinn sólarhring talað niður lánshæfismat bæjarins, einn og óstuddur.“
Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Fleiri fréttir Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Umferðarslys austan við Vík Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Sjá meira