Mikil ólga innan Sjálfstæðisflokksins Heimir Már Pétursson skrifar 16. janúar 2014 12:53 Ómar Stefánsson, Gunnar Birgisson og Aðalsteinn Jónsson. Oddviti Framsóknarmanna segir Gunnar Birgisson rúin öllu trausti. Formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins lætur ekki undan kröfum um að hann víki.
Framsóknarmenn vilja að Gunnar Birgisson og Aðalsteinn Jónsson bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í Kópavogi víki úr embættum formanna nefnda í bæjarstjórn. Mikil ólga er innan Sjálfstæðisflokksins og hefur verið skorað á formann fulltrúaráðs og formann kjörnefndar fyrir prófkjör flokksins í næsta mánuði að láta af störfum. Mikil ólga er innan meirihlutans í Kópavogi eftir að Gunnar Birgisson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með tillögu minnihlutans um húsnæðismál á fundi í fyrrakvöld og Aðalsteinn Jónsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sat hjá. Innan Sjálfstæðisflokksins hefur þetta verið túlkað sem andóf gegn Ármanni Kr. Ólafssyni oddvita flokksins og bæjarstjóra, sem má segja að hafi verið pólitískt niðurlægður með atkvæðagreiðslunni á þriðjudagskvöld. Jóhann Ísberg varabæjarfulltrúi flokksins og frambjóðandi í prófkjörinu í næsta mánuði gagnrýnir Braga Mikaelsson formann fulltrúaráðs flokksins og formann kjörnefndar í prófkjörinu harðlega í Morgunblaðsgrein í dag og skorar á hann að hætta störfum. Bragi segir að atkvæði hafi verið greidd um tillögu þessa efnis á átakafundi í stjórn fulltrúaráðsins í gær. „Þetta mál var tekið fyrir á stjórnarfundi í gær og afgreitt þar og ég mun ekki víkja og sé ekki tilefni til þess. Ég var kosinn með 60% atkvæða á aðalfundi í júní og tel mig hafa fullt umboð til að vera áfram,“ segir Bragi og það hafi verið staðfest með atkvæðagreiðslu í gær. Framsóknarmenn hafa verið í samstarfi með Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi um langt skeið en nú virðist mælirinn fullur hjá þeim hvað Gunnar Birgisson varðar og vilja þeir að hann hætti sem formaður framkvæmdaráðs bæjarins og Aðalsteinn Jónsson, sem sat hjá við atkvæðagreiðsluna í fyrrakvöld, hætti sem formaður leikskólanefndar.Ómar Stefánsson oddviti Framsóknarmanna segir ekki á Gunnar treystandi. „Það er alveg ljóst að þetta er þriðja upphlaupið í röð hjá Gunnari. Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins lofaði samstarfi og bót og betrunfyrir hönd Sjálfstæðisflokksins. Það er klárlega ekki að ganga eftir. Gunnar er rúinn öllu trausti eins og staðan er núna,“ segir Ómar. Hann hafi greint Aðalsteini frá þessari afstöðu og hann og Gunnar þurfi að hugsa sinn gang. Illmögulegt er að sjá nýjan meirihluta í stöðunni, þar sem samstarf minnihlutaflokkanna og Y-listans sprakk fljótlega eftir síðustu kosningar og Ómar telur ekki þörf á að mynda nýjan fyrir kosningar þrátt fyrir ólguna. „Nei, það þarf ekki nýjan meirihluta. Helstu mál liggja fyrir. Fjárhagsáætlun er klár og stimpluð. Aðalskipulag er klárt og stimplað. Það eru bara þessi tvö stóru mál sem hvert sveitarfélag afgreiðir og það var gert í nokkuð góðri sátt. Þetta er fyrst og fremst spurning um að geta unnið að hag Kópavogsbúa áfram,“ segir Ómar Stefánsson oddviti Framsóknarflokksins í Kópavogi.Leiðrétting: Í þessari frétt ljáðist að geta þess að viðtalið við Ómar var tekið fyrir fund formanna Framsóknarfélaga í bænum í gær og er beðist velvirðingar á því.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Sjá meira