Fínt að teikna heima þegar mig langar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 30. nóvember 2014 14:00 Matthildur Margrét á heima í Barcelona á Spáni og ætlar að vera þar um jólin. Mynd/Inga Lind
Teikning er áhugamál hinnar 14 ára Matthildar Margrétar Árnadóttur. Hún myndskreytti bókina Árleysi árs og alda fyrir frænda sinn, Bjarka Karlsson. Byrjaðir þú ung að teikna? „Já, ég hef verið að teikna síðan ég man eftir mér og alltaf fundist það gaman, en tók það aldrei mjög alvarlega samt.“ Hvort finnst þér skemmtilegra að teikna eða mála? „Hvort tveggja er mjög skemmtilegt, en ég mála ekki oft, finnst það aðeins erfiðara og miklu meiri vinna, þannig að mér finnst skemmtilegra að teikna bara á blað með blýanti. Málverk koma líka oftast verr út, allavega hjá mér.“ Ertu í myndlistarskóla? „Ég var í listaskóla einn vetur en að teikna er bara áhugamál hjá mér og mér finnst fínt að teikna bara heima hjá mér þegar mig langar.“ Ertu nýbúin að teikna myndirnar fyrir Bjarka? „Ég var 13 ára þegar ég kláraði þá síðustu.“ Hvar áttu heima núna og hversu lengi ertu búin að búa þar? „Ég á heima í Barcelona á Spáni og er búin að vera þar í tvö og hálft ár.“Afi á Rauð Ein myndanna sem Matthildur teiknaði í bókina hans Bjarka frænda.Er skólinn mikið öðruvísi þar en heima? „Þegar ég átti heima á Íslandi var ég í Hjallastefnunni sem er allt öðruvísi en skólinn sem ég er í hérna úti, Benjamin Franklin International School. Báðir skólarnir æðislegir samt.“ Hvert er uppáhaldsfagið þitt í skólanum? „Það er sennilega enska, af því við spjöllum um alls konar áhugaverða og mikilvæga hluti allan tímann.“ Ferðu oft á listasöfn? „Já, eiginlega. Mamma er líka svo spennt fyrir þeim og tekur okkur alltaf með.“ Ertu byrjuð að undirbúa jólin? „Ég er byrjuð að hlusta á jólalög og er mjög spennt fyrir jólunum.“ Hvar ætlar þú að vera á jólunum? „Ég ætla að vera hérna í Barcelona með fjölskyldunni. Jólin hér eru öðruvísi en á Íslandi og vitringarnir þrír eru jafn merkilegir og jólasveinninn. Þeir koma 6. janúar og það er því aðaldagurinn á jólunum hér. Við ætlum hins vegar að fá ömmu og afa til okkar og halda íslensk jól.“
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Palli og Sigga í suðrænni afmælissveiflu Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Fleiri fréttir Palli og Sigga í suðrænni afmælissveiflu Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Sjá meira