Heimtur nema 15 milljónum Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. janúar 2014 10:30
Innan við 0,2 prósent fást upp í kröfur í þrotabú einkahlutafélagsins Hreiðar Már Sigurðsson ehf. en af 7,7 milljarða króna kröfum fást um 15 milljónir króna greiddar. Einkahlutafélagið Hreiðar Már Sigurðsson ehf. var stofnað árið 2006. Félagið hélt utan um hlutabréfaeign Hreiðars Más, sem var forstjóri Kaupþings banka, í bankanum sjálfum. Félagið var lýst gjaldþrota í apríl 2011 af héraðsdómi en eignir þess urðu verðlausar eftir fall bankanna haustið 2008. Hreiðar Már átti ekki nein hlutabréf persónulega í Kaupþingi þar sem hann færði hlutabréfaeign sína og skuldir hennar tengdar yfir í einkahlutafélagið árið 2006. Hlutabréf sem hann keypti eftir þann tíma voru jafnóðum verið færð yfir í félagið. Aðeins 0,196% af 7,7 milljörðum fást upp í kröfur í bú félagsins. Nema heimtur því um 15 milljónum. Þetta kemur fram í frumvarpi til úthlutunar úr búinu sem verður kynnt á skiptafundi eftir tvær vikur, en frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Hreiðar Már var eigandi félagsins en stærsti kröfuhafi er Arion banki og þá er embætti tollstjóra með litla kröfu. Hreiðar Már var aðeins annar tveggja stjórnenda hjá Kaupþingi sem fékk að hafa skuldir vegna hlutabréfakaupa í einkahlutafélagi. Hinn var Kristján Arason sem lét færa skuldir sínar í félagið 7 hægri ehf. Slitastjórn Kaupþings höfðaði mál á hendur Hreiðari Má og eiginkonu hans vegna lánveitinga til einkahlutafélagsins. Það er nú rekið fyrir dómstólum. Hreiðar Már Sigurðsson var í desember dæmdur í fimm og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun í Al-Thani málinu. Dómnum hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira