Nakin í framboði Baldvin Þormóðsson skrifar 15. apríl 2014 09:08 Salka Valsdóttir vekur mikla athygli. vísir/daníel „
Ég var orðin svo pirruð á ákveðinni forræðishyggju sem var í gangi í samskiptum skólastjórnar og nemendafélagins,“ segir Salka Valsdóttir, einn meðlima Reykjavíkurdætra, en hún bauð sig fram til forseta Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð og hengdi upp nektarmyndir af sjálfri sér sem plaköt. „Það var rosaleg ritskoðun í skólablaðinu og mér fannst ég heldur ekki búin að pönkast nægilega mikið í stjórn,“ segir Salka og hlær. „Mér finnst að tilgangur nemendafélags sé að gera allt eins skemmtilegt og hægt er fyrir nemendurna en núna er eins og það sé verið að aga þá og allt gert til þess að þóknast skólastjórninni.“ Salka bjó til síðu vegna framboðsins á Facebook en var bönnuð í kjölfar myndbirtingarinnar. „Fyrst kom viðvörun en síðan var ég sett í bann í 48 klukkustundir,“ segir Salka en Facebook hafði flokkað myndina sem klám.Plakatið var umdeilt.Klárlega ekki klám „Þetta er klárlega ekki klám og það er engin hlutgerving við þessa mynd heldur er þetta bara falleg mynd sem vinkona mín, Sólveig Lára, tók.“ segir Salka. „Það er eins og þeir séu með einhverja græju sem skannar hvort það séu brjóst á myndum en ef ég væri karlmaður sem væri ber að ofan þá yrði ekkert sagt.“ Athæfi Sölku virðist þó hafa vakið athygli utan skólans en vinkona hennar sem stundar nám við Verslunarskóla Íslands sagði henni að einstaklingar innan Versló hefðu spurst fyrir um athæfið. „Það voru einhverjar stelpur að spyrja vinkonu mína hvort ég væri ekki hrædd um að fólk héldi að ég væri lauslát út af myndunum,“ segir Salka. „Síðan voru nokkrar stelpur sem spurðu hvort kærastinn minn leyfði mér að vera með hár undir höndunum,“ segir Salka og hlær en hún undirbýr brúðkaup sitt og unnusta síns, Almars S. Atlasonar. „Vinkona mín sagði þessum stelpum að ég væri ekki beint lauslát, í ljósi þess að ég væri að fara að gifta mig í sumar,“ segir Salka sem er ákaflega spennt fyrir athöfninni.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira