Fimm innbrot á þremur tímum í nótt 4. febrúar 2014 07:36
Hrina innbrota varð á þriggja klukkustunda tímabili í nótt þegar brotist var inn á fimm stöðum. Lögregla hafði hendur í hári flestra þjófanna. Fyrst var tilkynnt um húsbrot í Lindahverfi þar sem maður í annarlegu ástandi fór inn í íbúð. Húsráðendur gátu komið honum út og lögregla handtók hann skömmu síðar. Svo var maður undir áhrifum fíkniefna handtekinn við verslun í miðborginni þar sem hann var til vandræða. Þvínæst var innbrotsþjófur handtekinn inni í apóteki í Garðabæ þar sem hann var að leita lyfja. Hann hafði skorist á höndum og fæti og þurfti aðhlynningu á slysadeild, áður en hann var vistaður í fangageymslu til að sofa úr sér. Síðan var brotist inn í íbúðarhús í Kópavogi en lögreglan náði að hlaupa þjófinn uppi og handtaka, enda var hann valtur á fótunum. Þá var tilkynnt um innbrot í fataverslun í Hafnarfirði, en þjófurinn komst undan og ekki er vitað hverju hann stal. Loks var svo tilkynnt um innbrot í fyrirtæki í ausutrboerginni og sáust tveir menn á hlaupum þaðan. Lögregla náði öðrum þeirra og er hann vistaður í fagnageymslum.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira