Segir heilsugæslulækninn gera lítið úr konum Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 4. febrúar 2014 14:32 Nanna Atladóttir sakar lækni á heilsugæslustöðinni í Laugarási um kvenfyrirlitningu. Hún segist ekki lengur sætta sig við slíkt. „
Ég hef nú skorað á sjálfa mig að hætta að vera meðvirk með körlum sem niðurlægja konur. Ég ætla ekki lengur að sætta mig við að vera þæga og góða stúlkan. Ég mun mótmæla öllu misrétti og ójöfnuði sem ég verð vitni að,“ segir Nanna Atladóttir, félagsráðgjafi á heilsugæslunni í Laugarási, á bloggsíðu sinni. Tilefni færslu Nönnu eru að hennar sögn sífelldar athugasemdir Péturs Skarphéðinssonar heilsugæslulæknis í Laugarási í Biskupstungum í garð kvenna. Á heilsugæslunni starfa tveir karlar en tólf konur. Nanna segir að Pétri finnist sniðugt að ganga inn í kaffistofu starfsfólks, sem er að mestu skipuð konum og hæðast að þeim. Í morgun hafi hann hæðst að konu og gert lítið úr henni. „Þetta er svona í hundraðasta sinn sem ég hlusta þegjandi á athugasemdir viðkomandi læknis og mér var fyrirmunað að þegja lengur. Ég sagði að mér fyndist svona brandarar ekki sniðugir og að ég sætti mig ekki lengur við að sitja þegjandi undir slíku,“ segir Nanna.Nanna AtladóttirHún segir að í stað þess að Pétur bæðist afsökunar hafi hann hlegið að athugasemdum hennar og sagt að ætlun hans væri að æsa upp kvenfólkið í kringum sig, það þætti honum gaman. Nanna segir að engin kvennanna hafi tekið undir með henni enda séu allir hræddir við læknana. „Það er einfaldlega þannig að læknar eru hér í guðatölu, orð þeirra eru heilagur sannleikur, hvorki meira né minna,“ segir Nanna. „Við þurfum ekki að sætta okkur við að allt sé sagt í gríni. Og allra síst kvenfyrirlitningarbrandarar. Nei ekki lengur. Ég er gengin til liðs við aðrar konur eins og Hildi Lilliendahl sem ég dáist að fyrir hugrekki sitt og málefnalega umræðu,“ segir Nanna í bloggfærslu sinni. Við vinnslu fréttarinnar reyndi Vísir að hafa samband við Pétur Skarphéðinsson heilsugæslulækni en var sagt að hann tæki ekki síma að svo stöddu.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Sjá meira