Í startholunum ef með þarf Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 4. febrúar 2014 07:00 Kennarar í Menntaskólanum í Reykjavík funduðu um kjaramál í gær. VÍSIR/GVA „
Fundur kennara í Menntaskólanum í Reykjavík haldinn 3. febrúar 2014 harmar þá stöðu sem upp er komin í kjaramálum framhaldsskólakennara. Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við forystu FF og hvetur til aðgerða til að knýja fram úrbætur. Við núverandi stöðu verður ekki unað lengur.“ Þessi samþykkt kennaranna í Menntaskólanum í Reykjavík var samhljóma ályktunum sem fjöldi annarra kennarafélaga sendi frá sér að loknum samstöðufundum um kjaramál í skólunum í gær. Kennarar lýsa yfir vonbrigðum með viðbrögð samninganefndar ríkisins og skilningsleysi stjórnvalda á stöðu kennara. Bent er á að slök starfskjör ógni nýliðun og grafi undan gæðum skólastarfs. „Þetta var enginn æsingafundur. Við höldum ró okkar en erum í startholunum ef með þarf,“ sagði Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, kennari í Menntaskólanum í Reykjavík, að loknum samstöðufundi kennara þar. Framhaldsskólakennarar benda á að nær sautján prósenta munur sé á dagvinnulaunum þeirra og viðmiðunarhópa hjá ríkinu og vilja leiðréttingu. Ríkið hefur hafnað kröfugerð framhaldsskólakennara og hefur boðið þeim 2,8 prósenta launahækkun. Samningar framhaldsskólakennara runnu út um mánaðamótin og var kjaradeilu þeirra við ríkið vísað til Ríkissáttasemjara í síðustu viku. Kolbrún Elfa segir að framhaldsskólakennarar reyni auðvitað að semja. „Það er enginn áfjáður í að fara í verkfall en það kemur fljótlega í ljós hvort samningahljóð er í ríkinu.“ Samband íslenskra framhaldsskólanema hefur hvatt nemendur til að standa með kennurum og berjast fyrir leiðréttingu launa þeirra. „Við þurfum að standa með framhaldsskólakennurum. Kennarastarfið er gríðarlega vanmetið miðað við þá miklu ábyrgð sem það felur í sér,“ segir Laufey María Jóhannsdóttir, formaður sambandsins. Hún bætir því við að nemar hafi boðað til baráttufundar fyrir utan Alþingishúsið kl. 15 á fimmtudaginn.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Sjá meira