Verð vör við Þórberg annan hvern dag Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. nóvember 2014 15:00 Mér finnst náttúrlega óeðlilegt að halda upp á fimmtugsafmæli og vera innan við fimmtíu kíló. Það verður að vera jafnvægi í lífinu,“ segir Didda. Vísir/Ernir „
Ætlarðu að fara að tala um afmælið mitt sem ég ætla ekki einu sinni að halda upp á – af því ég er ekki orðin fimmtíu kíló? Mér finnst náttúrlega óeðlilegt að halda upp á fimmtugsafmæli og vera innan við fimmtíu kíló. Það verður að vera jafnvægi í lífinu,“ segir skáldkonan Didda full glettni þegar ég hringi til að falast eftir afmælisviðtali. Hún er nefnilega fimmtug í dag, skvísan. Og snýr blaðinu við. „Ég skal alveg spjalla við þig og þú mátt senda ljósmyndara. Ég bý á Grenimelnum í gamalli mjólkurbúð og fiskbúð enda er ekki þverfótandi fyrir draugum hérna. Ég verð vör við Þórberg annan hvern dag, það er nú ekki leiðinlegt!“ Hvað skyldi Didda svo ætla að gera í dag? „Vesturbærinn er nú svo mikið menningarpleis að auðvitað ver ég afmælisdeginum á hjúkrunar-og partíheimilinu Grund af því að þar er basar. Ég er alltaf með annan fótinn þar til að vera fyrir starfsfólkinu og heimsækja góðan vin minn. Þegar maður hefur náð því að verða fimmtugur þekkir maður orðið svo marga. Þá er maður líka orðinn Íslendingur. Auðvitað er gaman að vera ekki dauður eins og alltaf þegar maður á afmæli. Og heilsan er helvíti fín með.“ Það kemur í ljós í frekara spjalli að í stað þess að halda afmælispartí er Didda á förum til Frakklands á kvikmyndahátíð. Þar er vinkona hennar hún Sólveig Anspach aðalnúmerið. „Það er verið að fara í gegnum kvikmyndirnar hennar Sólveigar á hátíðinni og af því að ég hef tekið þátt í nokkrum þeirra fæ ég að mæta á staðinn og mæra hana. Það fer ég létt með,“ segir Didda. „Sólveig er byrjuð að vinna í myndinni sem ég á að vera í næst, fyrri hlutinn gerist í Frakklandi og sá seinni á Íslandi. Það verður vonandi byrjað í apríl en bíómynd er svo skringileg skepna og tekur svo langan tíma. Hún er mikill jaxl hún Sólveig, búin að vera með krabbamein í 22 ár en ég sé það að ef maður er að vinna við það sem stendur hjarta manns næst þá getur maður orðið býsna veikur og samt haft gaman. Við erum heppin að hún vill vera ein af okkur. Og lengi lifi Ísland!“
Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Lífið Palli og Sigga í suðrænni afmælissveiflu Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Fleiri fréttir Palli og Sigga í suðrænni afmælissveiflu Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Sjá meira