Wow Air fær ekki forgang að afgreiðslutímum Jóhannes Stefánsson skrifar 28. febrúar 2014 14:31
Úrskurður Samkeppniseftirlitsins um að Isavia skyldi gert að veita Wow Air forgang að afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli hefur verið felldur úr gildi. Þetta kemur fram í úrskurði Áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem var kveðinn upp í dag. Wow Air hafði krafist þess að Isavia myndi veita þeim forgang að afgreiðslutímum á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt úrskurði áfrýjunarnefndarinnar var kröfu þess efnis ranglega beint að Isavia, sem hefur samkvæmt úrskurðinum enga heimild til að taka ákvarðanir um slíkt. Wow Air getur því ekki beint kröfum sínum um úthlutun afgreiðslutíma að Isavia né Icelandair. Í úrskurðinum er tekið undir sjónarmið Isavia og Icelandair sem hafa haldið því fram að Isavia hafi enga heimild til að skipta sér af úthlutun afgreiðslutíma á flugvellinum. Slíkt sé alfarið á ábyrgð óháðs samræmingarstjóra sem starfar eftir alþjóðlegum úthlutunarreglum og hefur sjálfstætt stjórnsýsluvald samkvæmt íslenskum lögum.Segir Samkeppniseftirlitið hafa hlaupið á sig Úrskurðurinn er í samræmi við orð samræmingarstjórans á Keflavíkurflugvelli, Frank Holton, sem hefur haldið því fram að Samkeppniseftirlitið hafi hlaupið á sig með fyrri úrskurði sínum. „Samræmingarstjóri skal einn bera ábyrgð á úthlutun afgreiðslutíma," sagði Holton í samtali við fréttastofu þann 8. febrúar síðastliðinn. Þá segir meðal annars um fyrri úrskurð Samkeppniseftirlitsins: „Slík niðurstaða væri í fullu ósamræmi við fyrrgreind ákvæði reglugerðar nr. 1050/2008 [um úthlutun afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli innsk. blm.] og þau ákvæði evrópskra reglugerða sem hér hafa verið rakin.“ Í úrskurðinum kemur fram að Wow Air leitaði ekki til samræmingarnefndar afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli til að fá úrlausn í málinu, eins og þeim hefði verið í lófa lagið að gera samkvæmt 13. gr. reglugerðarinnar.
Tengdar fréttir Wow air ekki til Norður-Ameríku Flugfélagið Wow air hefur frestað Norður-Ameríkuflugi sínu sem átti að hefjast í maí 2014 fram á næsta sumar. Einnig verður hætt við flug til Stokkhólms. 5. febrúar 2014 08:00 WOW Air þarf að hætta við Ameríkuflug WOW Air er að öllu óbreyttu hætt við áætlunarflug til Norður-Ameríku. Forstjóri félagsins er harðorður í garð rekstaraðila Keflavíkurflugvallar. 29. janúar 2014 19:39 Segja samræmingarstjóra ekki horfa til samkeppnissjónarmiða Samkeppniseftirlitið hafnar ummælum Franks Holton. 10. febrúar 2014 12:39 Harma að Wow air sjái sér ekki fært að efna til samkeppni Isavia sendir frá sér yfirlýsingu vegna málefna Wow air. 5. febrúar 2014 13:59 Segir WOW Air geta sjálfum sér um kennt Samræmingastjóri Keflavíkurflugvallar sakar WOW Air um ósveigjanleika og segir þá sjálfa hafa komið sér í þá stöðu að þurfa að aflýsa flugum til Bandaríkjanna. 8. febrúar 2014 13:48 Samkeppniseftirlitið sendir Skarphéðni tóninn Samkeppniseftirlitið segir Skarphéðin Berg Steinarsson tjá sig um mál Wow Air og Isavia á röngum forsendum. 3. febrúar 2014 14:49 Telur ásakanir WOW ekki standast skoðun Skarphéðinn Berg Steinarsson fyrrverandi forstjóri Iceland Express segir Isavia alls ekki þekkt fyrir að standa vörð um hagsmuni Icelandair. 31. janúar 2014 17:47 Sakar Isavia um að hygla Icelandair Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air, sakar rekstraraðila Keflavíkurflugvallar um að draga taum Icelandair í úthlutun á afgreiðslutímum. WOW gæti þurft að draga sig úr samkeppninni í Norður-Ameríkuflugi fái flugfélagið ekki afgreiðslutíma til jafns við Icelandair. 18. desember 2013 20:19 Óvissa ríkir um afgreiðslutíma flugfélaganna á Keflavíkurflugvelli Flugfélagið Wow Air getur ekki farið fram á afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli í flug til Bandaríkjanna að morgni og seinnipartinn líkt og Samkeppniseftirlitið úrskurðaði í nóvember. 24. janúar 2014 13:17 Ósammála um úrskurð Samkeppniseftirlitsins Wow Air deila enn vegna fyrirhugaðs flugs til Bandaríkjanna. 30. janúar 2014 18:02 Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira
Wow air ekki til Norður-Ameríku Flugfélagið Wow air hefur frestað Norður-Ameríkuflugi sínu sem átti að hefjast í maí 2014 fram á næsta sumar. Einnig verður hætt við flug til Stokkhólms. 5. febrúar 2014 08:00
WOW Air þarf að hætta við Ameríkuflug WOW Air er að öllu óbreyttu hætt við áætlunarflug til Norður-Ameríku. Forstjóri félagsins er harðorður í garð rekstaraðila Keflavíkurflugvallar. 29. janúar 2014 19:39
Segja samræmingarstjóra ekki horfa til samkeppnissjónarmiða Samkeppniseftirlitið hafnar ummælum Franks Holton. 10. febrúar 2014 12:39
Harma að Wow air sjái sér ekki fært að efna til samkeppni Isavia sendir frá sér yfirlýsingu vegna málefna Wow air. 5. febrúar 2014 13:59
Segir WOW Air geta sjálfum sér um kennt Samræmingastjóri Keflavíkurflugvallar sakar WOW Air um ósveigjanleika og segir þá sjálfa hafa komið sér í þá stöðu að þurfa að aflýsa flugum til Bandaríkjanna. 8. febrúar 2014 13:48
Samkeppniseftirlitið sendir Skarphéðni tóninn Samkeppniseftirlitið segir Skarphéðin Berg Steinarsson tjá sig um mál Wow Air og Isavia á röngum forsendum. 3. febrúar 2014 14:49
Telur ásakanir WOW ekki standast skoðun Skarphéðinn Berg Steinarsson fyrrverandi forstjóri Iceland Express segir Isavia alls ekki þekkt fyrir að standa vörð um hagsmuni Icelandair. 31. janúar 2014 17:47
Sakar Isavia um að hygla Icelandair Skúli Mogensen, forstjóri WOW Air, sakar rekstraraðila Keflavíkurflugvallar um að draga taum Icelandair í úthlutun á afgreiðslutímum. WOW gæti þurft að draga sig úr samkeppninni í Norður-Ameríkuflugi fái flugfélagið ekki afgreiðslutíma til jafns við Icelandair. 18. desember 2013 20:19
Óvissa ríkir um afgreiðslutíma flugfélaganna á Keflavíkurflugvelli Flugfélagið Wow Air getur ekki farið fram á afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli í flug til Bandaríkjanna að morgni og seinnipartinn líkt og Samkeppniseftirlitið úrskurðaði í nóvember. 24. janúar 2014 13:17
Ósammála um úrskurð Samkeppniseftirlitsins Wow Air deila enn vegna fyrirhugaðs flugs til Bandaríkjanna. 30. janúar 2014 18:02