Lífið

Lífið mælir með Aninesworld.com, Knithacker og Petithome.

Marín Manda skrifar
Það er ekki alltaf auðvelt að finna það sem þú ert að leita að á samfélagsmiðlunum. Facebook, Instagram og Pinterest bjóða upp á endalausa möguleika og hugmyndir af hverju sem er-hvort sem það eru  mataruppskriftir, tíska eða handverk.

Lífið fann nokkrar áhugaverðar síður sem vert að kíkja nánar á. 

Bloggarinn- Anine Bing, fatahönnuður, bloggari og söngkona.

Hin danska Anine Bing heldur úti blogginu -aninesworld.com en hún hannar fatnað undir eigin nafni sem notið hefur mikilla vinsælda vestanhafs og á Norðurlöndunum. 

Bing er fyrrverandi fyrirsæta, söngkona í sveitinni Kill Your Darlings og móðir búsett í Los Angeles. Á blogginu endurspeglar hún rokkaðan fatastíl sinn og veitir innblástur að fallegri heimilishönnun og flottum barnafötum. Skemmtileg blanda af sólríkum Los Angeles-lífsstíl og skandinavískri hönnun.



Facebook-
Knithacker.com

Knithacker.com er síðan fyrir prjónaunnendur og inniheldur frábærar prjónauppskriftir og hugmyndir. 

Litríkar myndir af prjónuðum stólum, íspinnum og höfuðfötum fyrir gæludýrin eru margar hverjar skemmtilegar. Lífið mælir með þessari síðu sem lífgar aldeilis upp á tilveruna.

Pinterest- Unusual and fun food decor

Það getur stundum verið mikil áskorun fyrir foreldra að fá börn sín til að borða grænmeti og aðra hollustu. Á síðunni Unusual and fun food decor er að finna hugmyndir fyrir barnaafmælið og myndir af skemmtilega skreyttum mat sem gæti vakið áhuga barnanna.







Instagram
- Petithome

Hin brasilíska Analice Vomero er með rúmlega 25 þúsund fylgjendur á Instagram. Hún er bloggarinn á bak við Petithome og póstar reglulega stílhreinum og fallegum myndum af heimilum og innanhúshönnun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.