Stafræn bylting í Breiðholti Jón Júlíus Karlsson skrifar 24. janúar 2014 20:00
Fimmta Fab Lab smiðja landsins var opnuð í Breiðholti í dag. Breiðhyltingar og aðrir borgarbúar get nú hrint hugmyndum sínum í framkvæmd með hjálp fagmanna. Formaður borgarráð sýndi lipra takta með laserskera við opnun Fab Lab smiðjunnar í Eddufelli. Fjallað var um smiðjuna í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Japaninn ungi Takuma Oami leyfði fréttamanni að spreyta sig á uppfinningu sinni og það tók aðeins um eina mínútu að skera út merki Stöðvar 2 með laserskera. Þetta er þó aðeins brot af þeim hugmyndum sem hægt er að koma í framkvæmd með einföldum hætti í Fab Lab eða framköllunarstofu hugmynda sem opnaði í Breiðholti í dag. Frosti Gíslason hefur verið aðal driffjöðrinn í framþróun Fab Lab á Íslandi sem er nú með vinnusmiðjur á fimm stöðum á landinu. „Það sem er svo skemmtilegt við Fab Lab er að þar deila allir þekkingu sinni á milli manna og það er ætlast til þess þú deilir líka þinni þekkingu. Við hjálpumst öll að við að framkalla hugmyndir hvers annars,“ segir Frosti. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, er með stórt hjarta en hann nýtti sér aðstöðuna í Fab Lab í Breiðholti til að setja í framkvæmd fallega gjöf til stjórnenda smiðjunnar. Búast má við mikilli framkvæmdagleði meðal Breiðhyltinga. „Það er draumur að rætast. Þetta er mjög spennandi og gefur okkur mikið tækifæri,“ segir Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti. „Þeir kennarar sem hafa komið með nemendur sína hingað inn þeir tala um að nemendur fáist ekki út aftur. Það er algjörlega nýtt því yfirleitt bíða nemendur eftir því að tíminn klárist.“ Nánar um málið í myndbandinu hér að ofan.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira