Sáttmáli um upprunamerkingar á matvælum Elimar Hauksson skrifar 24. janúar 2014 16:30 Geitin Mollý frá Bjarteyjarsandi ásamt vörum sem framleiddar eru á býlinu. Mynd/Pjetur
Samtök atvinnulífsins, Bændasamtök Íslands og Neytendasamtökin undirrituðu í dag sáttmála um upprunamerkingar matvæla. Tilgangur sáttmálans er að auka vitund almennings og fyrirtækja um upprunamerkingar á matvörum en með undirrituninni var formlega hleypt af stokkunum sameiginlegu átaki um bættar upprunamerkingar og mun átakið standa yfir út árið 2014. Verkefnastjórn samstarfsaðilanna mun vinna að vitundarvakningu meðal matvælaframleiðenda og innflytjenda á matvælum og hvetja þá til að merkja upprunaland matvörunnar með skýrum hætti. Þá verður einnig unnið að leiðbeinandi tillögum um merkingar og neytendur hvattir til að kynna sér uppruna matvæla. Samkvæmt núgildandi reglum er ekki skylt að upprunamerkja kjöt á markaði hérlendis. Samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun verður skylt að upprunamerkja kjöt frá desember 2014 í samræmi við reglugerð Evrópusambandsins sem þá tekur gildi en Íslendingum er skylt að taka reglugerðina upp í samræmi við ákvæði EES-samningsins. Þá verður einnig skylt að geta uppruna aðalhráefnis samsettrar vöru ef uppruni þess er annar en uppruni vörunnar sjálfrar. Markmið sáttmála samtakanna er að vekja almenning og fyrirtæki til umhugsunar um gildi þess að upprunamerkja mat. Í yfirlýsingu samtakanna segir að takmarkið sé að allar matvörur verði upprunamerktar þannig að neytendur velkist ekki í vafa um það hvar þær eru framleiddar og hvaðan hráefnið er fengið. Það séu sjálfsögð réttindi neytenda að vita hvaðan maturinn þeirra kemur. Upprunamerkingar matvæla hafa verið í umræðunni eftir að greint var frá því að íslenskir kjúklingaframleiðendur hefðu flutt inn frosna kjúklinga frá evrópu og selt sem íslenska vöru.Sáttmálinn í heildBændasamtök Íslands, Neytendasamtökin og Samtök atvinnulífsins fagna þeirri umræðu sem uppi hefur verið um mikilvægi þess að að neytendum sé ávallt ljóst hvert er upprunaland matvörunnar sem þeim stendur til boða, bæði í verslunum og veitingahúsum hérlendis.Samtökin hvetja matvælaframleiðendur og innflytjendur að standa vel að merkingum á uppruna matvæla og hvetja neytendur til þess að láta sig þetta mikilvæga málefni varða og krefjast upprunamerkinga á öll matvæli.Það er vilji samtakanna að markmið þeirra um upprunamerkingar matvæla nái fram að ganga og að allir leggist á eitt um að svo megi verða.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Sjá meira