Var nauðgað af fimm mönnum um verslunarmannahelgi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 24. janúar 2014 14:53 Kittý Guðmundsdóttir var átján ára þegar hún varð fyrir kynferðisárás á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. vísir/óskar
Kittý Guðmundsdóttur var nauðgað af fimm ungum mönnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 1996. Kittý var átján ára þegar hún varð fyrir árásinni og í pistli sem hún skrifaði á vefinn Hun.is segir hún sögu sína í fyrsta sinn. Hún segist hafa breyst mikið eftir nauðgunina og þegar hún kom heim eftir hátíðina fannst henni hún ekki vera sama stelpan og þegar hún lagði af stað til Eyja. „Samband mitt við foreldra mína fór úr góðu yfir í mjög slæmt. Þau skildu ekkert í því hvað hefði komið fyrir og af hverju ég hefði breyst svona. Þau fóru til vinar míns og spurðu hann hvort ég væri byrjuð í eiturlyfjum.“ Kittý ákvað að segja engum frá atburðinum og fyrir henni er Verslunarmannahelgin ekki góður árstími. Hún kynntist eiginmanni sínum tveimur árum eftir atburðinn og var hann sá fyrsti sem hún sagði frá því sem hafði gerst. „Hann náði loksins að sannfæra mig um að það væri komin tími til að segja foreldrum mínum frá. Þá voru liðin sex ár. Ég fékk mömmu til mín og við fórum í bíltúr. Ég sagði henni hvað hefði gerst og loksins fengu þau svar. Svar við því hvað hefði komið fyrir mig, af hverju ég hefði breyst svona. Þau áttu svo skilið að fá svar eftir allan þennan tíma. Ég er enn þann dag í dag að læra að lifa með þessu.“ Kittý segist telja að hópnauðganir séu algengari en við höldum. Umræðan þurfi að vera opin og og nauðganir megi ekki vera feimnismál. Í samtali við Vísi segist Kittý hafa ákveðið að skrifa pistilinn til að klára málið fyrir sjálfa sig. „Ef það var verið að tala um nauðganir fyrir framan mig hugsaði ég alltaf „Guð, ætli þau viti þetta með mig?“ En í dag er mér alveg sama þó allir viti þetta. Það er ekki mitt að skammast mín fyrir þetta.Vísir birtir pistilinn í heild sinni með góðfúslegu leyfi Kittýjar: Núna síðustu vikur hef ég verið að lesa greinar þar sem ungt fólk, sem lent hefur í kynferðislegu ofbeldi, er að koma fram og segja sína sögu. Ég hef dáðst af þessu unga fólki og hugsað: „Ég vona innilega að ég muni einhvern tímann hafa það hugrekki að koma svona fram og segja mína sögu.“ Í dag ætla ég að láta verða af því. 1996 þegar ég var 18 ára fór ég á mína fyrstu og síðustu Þjóðhátíð í Eyjum. Jii, þetta átti að vera svo gaman. Það var svo skemmtilegt á föstudagskvöldinu að þetta átti sko að vera árlegt. Ég hitti fullt af vinum, kynntist fullt af fólki og dansaði út í eitt. En laugardagskvöldið var ekki eins skemmtilegt. Ég var á danssvæðinu með öllum vinunum. Hitti fólk frá kvöldinu áður og fór að spjalla við þau. Þá týndi ég vinum mínum og ákvað því að fara upp í brekku til að athuga hvort ég sæi þau. Þar settist ég niður og í smá stund horfði ég á gesti þjóðhátíðarinnar skemmta sér. Eftir nokkurn tíma komu 5 strákar til mín og settust hjá mér. Ég þekkti þá ekki neitt. Þeir byrjuðu að spjalla við mig og virtust vera ágætisstrákar. Einn þeirra fór aðeins að reyna við mig en ég gaf það skýrt í ljós að það væri nú ekki eitthvað sem ég vildi. Hann gaf hinum merki um að láta sig hverfa, þeir stóðu upp og röltu rólega í burtu. Sá sem varð eftir reyndi að kyssa mig en ég ýtti honum í burtu. Hann kallaði síðan á hina og rauninni bað þá um hjálp, sem og þeir gerðu. Þrír þeirra misnotuðu mig en hinir tveir hjálpuðu við að halda mér niðri og halda mér hljóðlátri. Eftir einhvern tíma og mikla baráttu dó líkaminn minn. Hann slökkti bara einfaldlega á sér. Ég dofnaði og lá bara kyrr þar til öllu væri lokið. Það var eins og ég hefði bara yfirgefið líkamann minn á meðan. Eftir að þessu var lokið og þeir voru farnir lá ég í brekkunni í dágóða stund. Ég vil taka það fram að á þessum tíma hafði ég verið búin að drekka 2 bjóra svo að ég var ekki drukkin og ég var klædd í þykkum hermannaheilgalla svo að það var ekkert ögrandi við mig. Eftir að ég kom heim hefði allt breyst. Ég var ekki sama stelpan og ég var þegar ég lagði af stað til Eyja. Ég hafði misst alla virðingu fyrir sjálfri mér og þar af leiðandi nánast öllum í kringum mig. Ef þú elskar ekki sjálfan þig er erfitt að elska einhvern annan. Samband mitt við foreldra mína fór úr góðu yfir í mjög slæmt. Þau skildu ekkert í því hvað hefði komið fyrir og af hverju ég hefði breyst svona. Þau fóru til vinar míns og spurðu hann hvort ég væri byrjuð í eiturlyfjum. Það var ekkert annað sem þau gátu hugsað sér sem gæti snarbreytt manneskju á svona stuttum tíma. Ég ákvað að segja engum frá þessum atburði. Ég hugsaði um að ef ég myndi ekki tala um hvað hefði gerst, þá myndi ég gleyma þessu smátt og smátt. En það er langt í frá að vera satt. Minningin er alveg jafn sterk í dag eins og var daginn eftir. En smám saman lærir maður að lifa með því áfalli sem maður verður fyrir. Fyrir mér er Veslunamannahelgin ekki góður tími ársins. Á hverju ári kvíði ég fyrir fréttunum eftir helgina. Og í hvert skipti hugsa ég..: „Úfff hvað ég vona að þessi persóna sé með sterka sál.“ Fyrsta manneskjan sem ég talaði við um þetta er maðurinn minn. Ég kynntist honum tveimum árum eftir atburðinn. Hann náði loksins að sannfæra mig um að það væri komin tími til að segja foreldrum mínum frá. Þá voru liðin sex ár. Ég fékk mömmu til mín og við fórum í bíltúr. Ég sagði henni hvað hefði gerst og loksins fengu þau svar. Svar við því hvað hefði komið fyrir mig, af hverju ég hefði breyst svona. Þau áttu svo skilið að fá svar eftir allan þennan tíma. Ég er enn þann dag í dag að læra að lifa með þessu. Ég tel að hópnauðganir séu algengari en við höldum. Umræðan þarf að vera opin eins og hún hefur verið undafarið. Þetta má alls ekki vera feimnismál eins og þetta var hjá mér í mörg ár. Það er langt því frá að vera gott fyrir þolandann. Umræðan er ekki auðveld en hún er nauðsynleg. Knús til ykkar allra, Kittý Guðmundsdóttir.
Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Innlent Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Innlent Hvalfjarðargöng eru lokuð Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Bíll valt eftir aftanákeyrslu Innlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Fleiri fréttir Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Enn annað innbrot í Laugardalnum Ráðherra um árásir, lögblindur sjúkraþjálfari og álftarungar á hóteli Hvalfjarðargöng eru lokuð Bíll valt eftir aftanákeyrslu Símasambands- og netlaust fyrir austan Metfjöldi með doktorspróf úr HR „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent