Leggja áherslu á leiðréttingu launa Samúel Karl Ólason skrifar 7. janúar 2014 13:44 Mynd/Daníel
Samningaviðræður kennara og stjórnenda í framhaldsskólum við ríkið ganga hægt. Félög framhaldsskólakennara og stjórnenda í framhaldsskólum eru nú í viðræðum við samninganefnd ríkisins um endurnýjun kjarasamnings sem rennur út í lok þessa mánaðar. Í fréttatilkynningu frá samtökunum kemur fram að fimm samningafundir hafi verið haldnir og að félögin hafi kynnt ríkinu samningshugmyndir sínar í byrjun desember. „Í ljósi mjög slakrar launa- og kaupmáttarþróunar félagsmanna KÍ í framhaldsskólum undanfarin ár má vænta þess að samningar verði erfiðir,“ segir í tilkynningunni. „Eins og fram kom í frétt RÚV um samningamál samtaka opinberra starfsmanna í gær kemur KÍ lakast út. Þetta sýnir skýrsla um launaþróun á vinnumarkaði frá 2006 til 2013. Munurinn á meðaldagvinnulaunum KÍ og helstu viðmiðunarhópa hjá ríki er nú um 17% en meðallaun sérfræðinga á almennum markaði eru næstum tvöföld meðallaun kennara í framhaldsskólum. Grunnlaun nýútskrifaðs framhaldsskólakennara með fimm ára háskólamenntun eru um 300 þúsund krónur á mánuði.“ Samninganefndirnar leggja áherslu á að í þeirri samningsgerð sem nú er hafin þurfi að leiðrétta laun í framhaldsskólum og gera kjörin sambærileg kjörum skyldra hópa.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira