Flugfélög og ferðaþjónustufyrirtæki urðu að óþörfu fyrir hundruð milljarða tjóni í Eyjafjallagosinu Heimir Már Pétursson skrifar 7. janúar 2014 13:45 Jónas Elíasson prófessor í verkfræði segir galla í líkönum veðurfræðinga sem lágu til grundvallar þess að flugfélög í heiminum urðu fyrir ríflega 200 milljarða tjóni árið 2010. Alger óþarfi hafi verið að stöðva alþjóðlegt flug vegna eldgossins í Eyjafjallajökli árið 2010
Algerlega ástæðulaust var að lama meira og minna allt flug í Evrópu vegna eldgossins í Eyjafjallajökli að mati rannsóknarprófessors við Háskóla Íslands sem vinnur að alþjóðlegri rannsókn á dreifingu eldfjallaösku. Flugfélög og ferðaþjónustuaðilar töpuðu hundruð milljarða vegna stoppsins. Talið er flugfélögin í heiminum hafi tapað ríflega tvö hundruð milljörðum króna vegna þeirrar röskunar sem varð á alþjóðaflugi innan og til og frá Evrópu í Eyjafjallagosinu árið 2010. En um 107 þúsund fluferðum var þá aflýst á átta dögum, vegna viðvörunar veðurfræðinga í Evrópu um dreifingu össtróks frá gosinu.Jónas Elíasson rannsóknarprófessor í verkfræði við Háskóla Íslands hefur unnið að alþjóðlegri rannsókn á dreifingu ösku við Háskólann í Kyoto í Japan undanfarin tvö ár og segir rannsóknina leið í ljós galla í þeim líkönum sem stuðst hefur verið við. Þannig hafi líkönin gert ráð fyrir að öskuskýið frá Eyjafjallajökli væri allt að 40 sinnum breiðara en það í raun og veru var.Þá hefðu áhrifin á alþjóðlegt flug orðið miklu, miklu minni en þau voru?„Já þau hefðu eiginlega engin verið. Ég á heldur ekki von á því ef gos eins og Eyjafjallajökuls gosið kemur aftur núna að áhrifin af því verði eins mikil,“ segir Jónas. Hann voni að þeir sem geri spárnar á veðurstofunni í Bretlandi hafi lagað líkön sín eitthvað þótt hann hafi ekki séð það. „En mér finnst einhver veginn að þær umræður sem farið hafa fram í sambandi við þetta bendi til þess að menn verði meira sjálfráðir í framtíðinni og muni þá fljúga þar sem ekki er nein sýnileg aska,“ segir Jónas. Eins og áður sagði var tjón flugfélaganna metið á ríflega 200 milljarða króna og þá er ekki talið tjón flugvalla og annarra ferðaþjónustuaðila sem einnig skiptir tugum eða hundruðum milljarða.Þannig að þú ert að segja að þetta tjón hefði ekki þurft að eiga sér stað?„Já, já það hefði ekki þurft að eiga sér stað og það eru fjöldamargir sem hafa bent á það,“ segir Jónas Elíasson prófessor í verfræði sem flytur fyrirlestur um málið í Háskóla Íslands á föstudag og er hann opinn öllum á meðan húsrúm leyfir.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira