Óttast yfirvofandi hækkanir á vöruverði Kristjana Arnarsdóttir skrifar 7. janúar 2014 22:45 Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir hækkanir mikið áhyggjuefni. Fréttablaðið/vilhelm „
Uppleggið í þessum kjarasamningum og skilaboð frá atvinnurekendum eru þau að halda eigi aftur af verðhækkunum eins og hægt er. Þar af leiðandi er það mikið áhyggjuefni þegar innlendir framleiðendur hækka verð á sínum vörum því það mun skila sér út í verðlagið,“ segir Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu aðspurður um fullyrðingar Gunnars Inga Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Hagkaupa, á Bylgjunni í dag. Þar sagði Gunnar að verðhækkanir væru yfirvofandi. „Það eru nú þegar fjórir birgjar sem boðað hafa einhverjar hækkanir á sínum vörum, allt frá 3% og upp í 7%, þrátt fyrir styrkingu krónunnar.“ Hann nefndi nokkur dæmi og sagði að ís frá Emmess komi til með að hækka um 4,5%, próteindrykkurinn Hámark hækkar um 5%, Freyju sælgæti hækkar um 7%, brúnegg um 4,2% og Lýsi um 3-4%.Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, ræddi einnig við Reykjavík síðdegis og sagði að mikilvægt væri að ná tökum verðbólgunni og ná niður vöxtunum enda íslenskt atvinnulíf eitt það skuldsettasta í heimi. „En ef þetta gerist svona, að atvinnulífið ætli að nota þessa stöðu til þess að hækka sína álagningu og auka sinn hagnað, þá fá þeir bara til baka aukna verðbólgu og vaxtahækkanir og ég sé ekki hvernig þeim verður mikið betur borgið við það.“ Mörg fyrirtækjanna sem Gunnar minntist á eru innan Samtaka iðnaðarins. Svana Helen Björnsdóttir, formaður samtakanna, segir í samtali við Fréttablaðið að hún hvetji eindregið til þess að verð á vöru og þjónustu verði ekki hækkað. Hlusta má á viðtölin við þá Gunnar og Gylfa í Reykjavík síðdegis hér.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira