Gæsluvarðhald vegna stórfelldrar líkamsárásar Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 7. janúar 2014 21:14 Maðurinn sem var stunginn hlaut lífshættulega áverka. mynd/GVA
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem grunaður er um stórfellda líkamsárás með því að stinga annan mann með hnífi á veitingastað í Reykjavík síðastliðið laugardagskvöld. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 10. janúar og einangrun á meðan. Samkvæmt framburði vitna kom til átaka á milli mannanna þar sem sá sem stunginn var ásakaði hinn kærða um þjófnað á bifreið. Það hafi svo farið þannig að hinn kærði stakk hinn. Sá var fluttur á slysadeild. Hinn kærði fór einnig á slysadeild ásamt fleirum og bað hann eitt vitnið um að stinga sig með hnífnum. Þegar sá vildi ekki gera það lét maðurinn sig hverfa. Lögreglan elti hann uppi og handtók hann. Maðurinn sem var stunginn hlaut lífshættulega áverka en stungan náði inn að milta og hlaut hann blæðingar í kviðarholi og missti töluvert blóð. Að mati lögreglu sem staðfest var af Hæstarétti má ætla að ef hinn kærði verður látinn laus muni hann eiga þess kost að torvelda rannsókn málsins. Með því til dæmis að hafa áhrif á vitni sem lögreglan á eftir að ræða við.
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Líkfundur við Austurbæjarskóla Innlent Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hafa borið kennsl á hinn látna Innlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Líkfundur við Austurbæjarskóla Hólmbert bjargaði manni úr bíl sem stóð í ljósum logum í Kóreu Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Gera ráð fyrir óvenjulangri aðalmeðferð í Reykholtsmálinu Tók konu kyrkingartaki nóttina eftir dóm og verður lengur í haldi Segir efnahagsmálin og verðbólguna að þróast í rétta átt Kristrún vísar ásökunum um sinnuleysi á bug Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Vill að vinnu við gerð áhættumats verði flýtt Leita óþekkts árásarmanns á Þjóðhátíð Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Þriðji maðurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald Líkur á rigningu í Reykjavík þegar almyrkvinn gengur yfir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Sjá meira