Hvunndagshetja ársins Sigurður Hallvarðsson 18. maí 2014 13:30 Frá vinstri Sölvi Páll, Breki Steinn, Aron, Sigurður, Hallvarður, Ágústa, Óskar og Snorri. myndir/úr einksafni
Sigurður Hallvarðsson greindist með heilaæxli fyrir tæpum 10 árum og hefur notið stuðnings og endurhæfingar í Ljósinu. Hann hefur farið í fjölda aðgerða til að fá fá meina sinna bót. Í maí síðastliðnum kom í ljós að fjöldi meina hafði tekið sér bólfestu í heila Sigurðar sem í kjölfarið afþakkaði geisla- og lyfjameðferð.Glaðastur þegar hann gleður aðra Elsti sonur Sigurðar, Snorri, segir pabba sinn góðan mann sem setji annarra hagsmuni fram yfir sína eigin. „Hann hefur alltaf verið þannig. Pabbi er mjög vinmargur og ég hef aldrei heyrt neitt annað en góða hluti um hann sagt. Hann er einfaldlega besti pabbi í heiminum og með betri mannverum sem ég hef kynnst,“ segir Snorri og segir pabba sinn vel að verðlaununum kominn. „Allir tilefndir eru að gera algjörlega frábæra hluti. Það sem er kannski sérstakt í hans tilviki er að maður í hans ástandi skuli standa fyrir svona söfnunum, líkt og hann gerði fyrir Ljósið og Rjóðrið, í staðinn fyrir að slappa af og einbeita sér að sínum veikindum. En hann er einfaldlega ekki þannig. Hann hefur alltaf sagt að það sem geri hann glaðastan sé að gera eitthvað til þess að gleðja aðra.“Sigurður og synirnir, Aron, Hallvarður og Snorri.Truflaði vinnandi fólk Snorri sá um að skutla pabba sínum í meðferðir í nokkra mánuði. „Það var frekar sérstakt, því að ég kynntist honum allt öðru vísi en hann er í kringum fjölskylduna. Til dæmis var það algjört aðalatriði að stoppa í Ljósinu til þess að gleðja konurnar þar og svo var haldið á aðra staði „að trufla vinnandi fólk“ eins og hann kallaði það sjálfur. Svo heimsóttum við reglulega Kristínu sem var með honum á Grensási í endurhæfingu og er móðir gamallar kærustu hans og bekkjarsystur. Hann hefur haldið góðu sambandi við hana og leyfir henni að fylgjast mjög vel með öllu sem hann gerir og dóttur hennar líka. Eins og ég sagði áður setur hann hagsmuni annarra á undan sínum eigin.“Sigurður Hallvarðsson ásamt Aroni, syni sínum.Mynd/LjósiðFjölskyldan stendur þétt saman Veikindi Sigurðar hafa haft veruleg áhrif á fjölskylduna, eins og gefur að skilja. „Áhrifin eru bæði góð og slæm. Flest börnin ólust upp við það að pabbi var veikur og hann þurfti oft að hvíla sig aðeins meira en aðrir. Við lærðum að lifa með því og aðlagast. En ég vil meina að við í fjölskyldunni höfum færst nær hvert öðru eftir því sem veikindin urðu alvarlegri. Það hefur farið mikið í að búa okkur undir þetta sem er vissulega erfitt. Við höfum verið að fara á námskeið og fundi og reynt að leita alls kyns úrræða til þess að vinna úr þessu öllu saman. En við erum öll mjög sátt og þakklát fyrir þennan tíma sem við höfum fengið með pabba.Hann hefur ekki mikið sýnt að hann sé veikur, hvorki í fjölmiðlum né heima fyrir, hann er bara eins og hann er. Nú þegar veikindin eru að ná hámarki er þetta mjög erfitt fyrir alla – en við reynum að passa upp á hvert annað og vera til staðar fyrir alla.“Sigurður og synir hans Snorri, Hallvarður og Aron.Undirbjó áheitagönguna í heilt árErna Magnúsdóttir er forstöðukona Ljóssins. Hún segir alla þá sem hafi kynnst Sigurði í Ljósinu brosa þegar um hann er rætt. „Hann er maður með fallegt hjarta og fallega sál,“ segir Erna og bætir við að áheitagangan sem Sigurður hafi farið fyrir hafi verið gríðarlega þýðingarmikil fyrir Ljósið. „Siggi hafði talað um skipulagningu göngunnar í heilt ár. Gangan hófst í myrkri og rigningu frá Hveragerði en það var mjög glatt yfir öllum. Siggi var glaður og stoltur yfir að nú væri þessi langþráði draumur að rætast. Hann vann þrekvirki þennan dag, hann gekk til Reykjavíkur, spastískur á vinstri fæti en lét það ekki á sig fá. Góðvinur hans Willum Þór gekk alla leið með honum ásamt fleiri góðum vinum. Um 200 manns söfnuðust saman fyrir framan Holtagarða og gengu með honum síðasta spölinn og svo var haldin gleði- og þakkarsamkoma í Ljósinu þar sem Siggi var hylltur,“ segir Erla, og bætir við að hann hafi stórt hjarta og hafi allan sinn tíma í Ljósinu hugsað um hvað hann geti gert til að styðja við bakið á starfseminni.Engum öðrum líkur „Eftir að Siggi lauk göngunni þá kom smá tómarúm hjá honum og hann vildi fá fleiri verkefni,“ segir Erla en þar sem Ljósið þarf að reiða sig að miklu leyti á styrki frá þjóðfélaginu þá hélt hann ótrauður áfram að vinna starf í þágu Ljóssins. „Hans næsta verkefni var að safna fallegum og nytsamlegum munum í jólabúð Ljóssins sem var opin í desember. Það varð úr að Siggi fór um allan bæinn og safnaði fullt af flottum munum sem svo voru seldir með mikilli gleði til styrktar starfseminni.“ Á þessu ári datt Sigurði í hug að fá vini sína til að gefa Ljósinu lag sem væri tileinkað starfseminni og að það gætu komið inn tekjur af því. „Hann talaði því við vin sinn Jón Ólafsson tónlistarmann og þar er að fæðast fallegt Ljósalag sem verður tileinkað öllum þeim sem hafa glímt við krabbamein. Siggi er engum líkur.“
Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira