Dýraeftirlitsmaður víkur tímabundið vegna gruns um vanrækslu Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 30. janúar 2014 10:16 Matvælastofnun hefur borist upplýsingar um önnur mál sem tengjast umræddu tilviki eða umhirðu með stóðhestagirðingum á ábyrgð hlutaðeigandi. vísir/stefán
Matvælastofnun hefur ákveðið í samráði við dýraeftirlitsmann sem starfar hjá stofnuninni að hann hverfi tímabundið frá störfum meðan ásakanir um að hann hafi í nokkrum tilvikum ekki sinnt skyldum sínum um umhirðu og eftirlit með stóðhestagirðingum verða teknar til skoðunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Starfsmaðurinn var ráðinn til Matvælastofnunar um áramótin þegar búfjáreftirlit færðist frá sveitarfélögunum til stofnunarinnar, samkvæmt lögum sem þá tóku gildi. Um er að ræða stöðu sérfræðings sem sinnir eftirliti með dýrahaldi ásamt móttöku og úrvinnslu tilkynninga um illa meðferð dýra.Kæra ekki lögð fram Starfsmaðurinn uppfyllti allar kröfur sem gerðar voru til starfsins og hafði sinnt sambærilegu starfi fyrir sveitarfélög í Árnes- og Rangárvallasýslum í rúman áratug. Í ráðningaferlinu hafði Matvælastofnun spurnir af því að haustið 2007 hafi Landbúnaðarstofnun haft til skoðunar og gert alvarlegar athugasemdir við fóðurástand og umhirðu stóðhests sem tímabundið var í umsjón viðkomandi starfsmanns. Það var mat dýralækna að hesturinn hafi ekki orðið fyrir varanlegum skaða, engin kæra var lögð fram og þótti ekki ástæða til að grípa til frekari aðgerða. Í kjölfarið sinnti starfsmaðurinn áfram störfum sínum sem búfjáreftirlitsmaður hjá viðkomandi sveitarfélögum og hafði framangreint mál engin áhrif þar á. Engu að síður þótti Matvælastofnun rétt að leita nánari upplýsinga um hæfni hans og störf hjá sveitarfélögunum og við kynbótasýningar. Umsagnir þessara aðila voru jákvæðar og ekkert kom þar fram sem kastaði rýrð á störf hans við eftirlit með dýrahaldi. Í ljósi hæfnismats Matvælastofnunar og jákvæðra umsagna var gengið frá ráðningu starfsmannsins.Upplýsingar um önnur mál Á síðustu dögum hafa Matvælastofnun borist upplýsingar um önnur mál sem tengjast umræddu tilviki árið 2007 eða umhirðu með stóðhestagirðingum á ábyrgð hlutaðeigandi á árunum 2006 og 2009. Stofnuninni og dýraeftirlitsmanninum þykir því rétt að fela óháðum aðilum að skoða umrædd mál og hvort gætt hafi verið að eðlilegum starfsháttum við eftirlit með stóðhestagirðingum á hans vegum. Athugun þessi hefur þegar verið sett í gang, því ekki má draga úr trúverðugleika stofnunarinnar né véfengja verk þeirra sem þar starfa, eins og segir í tilkynningunni. Málið verður tekið til endanlegrar ákvörðunar þegar niðurstöður liggja fyrir, en skoðun málsins verður í höndum dýralæknis, sem sæti á í Dýralæknaráði, lögfræðings frá Landlögmönnum og fulltrúa frá Landbúnaðarháskóla Íslands.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Sjá meira