Innlent

Fangar á Litla-Hrauni skaffi eigin sængur

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Fangar á Litla-Hrauni þurfa frá og með mánaðarmótum að skaffa sínar eigin sængur og kodda.
Fangar á Litla-Hrauni þurfa frá og með mánaðarmótum að skaffa sínar eigin sængur og kodda.
Fangar á Litla-Hrauni þurfa eftir mánaðarmótin að koma með eigin sængur og kodda. Þetta staðfestir Tryggvi Ágústsson, deildarstjóri í fangelsinu, í samtali við Vísi. „Já, það stendur til að menn þurfi að skaffa sinn eigin sængur og kodda. Einhverjir fangar hafa óskað eftir þessu og við reiknum með því að innleiða þessa reglu frá og með mánaðarmótum,“ útskýrir Tryggvi.

Hann vildi ekki fara nánar út í ástæðurnar á bakvið ákvörðunina. Hann segir ekki ákveðið hvað verði um þær sængur sem nú eru til staðar í fangelsinu, líklega muni þær verða geymdar þar og þá hægt að lána föngum.

Móðir eins fanga sem fréttastofa ræddi við er ósátt við ákvörðunina. „Mér þykir þetta ótækt í íslensku samfélagi og brot á mannréttindum fólks sem hefur orðið undir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×