Milliganga verði gerð refsiverð Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 30. janúar 2014 11:04 Kristján Þór flutti skýrslu um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni á Alþingi. „
Það er vitað um ólögmæta háttsemi í þessu sem er ólíðandi og ég tel að við eigum að leita réttarbóta fyrir fólk í þessari stöðu. Síðan er spurning nákvæmlega hvernig það verður gert,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra í samtali við Fréttablaðið en hann flutti skýrslu um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni á Alþingi í gær. Ekki var einhugur meðal þingmanna um málið en samkvæmt skýrslunni skal stefnt að útfærslu frumvarps sem heimilar staðgöngumæðrun. Stefnt er að útfærslu á frumvarpi þar sem núverandi bann við staðgöngumæðrun verður fellt úr gildi og heimild veitt til að framkvæma tæknifrjóvgun á konu sem gengur með barn í velgjörðarskyni til að afhenda það öðru fólki eftir fæðingu. Þeir sem taka þátt í ferlinu munu þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði og hæfni þeirra metin. Gengið verður út frá því að sú kona sem gengur með og fæðir barnið sé móðir þess og sérstök ættleiðing fari fram eftir fæðingu barnsins að liðnum ákveðnum umþóttunartíma. „Það þarf að svara mörgum spurningum bæði lögfræði- og siðferðislegum, við vinnuna framundan,“ segir Kristján. Staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni verði bönnuð sem og að auglýsa og kynna staðgöngumæðrun. Þá verði hvort tveggja refsivert. Milliganga um að gera samninga við erlenda aðila sem bjóða upp á þjónustu staðgöngumæðra verði einnig refsiverð sem og samningar sem gerðir eru við slíka erlenda aðila. Afmarka verði vel hvaða greiðslur fari milli aðila vegna kostnaðar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira