Enski boltinn

Coutinho: Það er meiri pressa á Man. City

Fagnar Coutinho í dag?
Fagnar Coutinho í dag? vísir/getty
Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool, segir að leikmenn Liverpool muni mæta afslappaðir til leiks í leikinn gegn Man. City í dag enda sé pressan ekki á þeim.

Margir stilla þessum leik upp sem úrslitaleik ensku úrvalsdeildarinnar enda mun sigrvegari leiksins ráða sínum örlögum.

"Það er meiri pressa á Man. City en við erum ekkert að hugsa um pressu. Við vissum að City væri sigurstranglegasta liðið og þeir eiga leiki inni. Við reynum bara að hugsa um einn leik í einu," sagði Coutinho.

"Það vita allir að þessir síðustu leikir skipta öllu máli. Við munum selja okkur dýrt og þessi ákveðni leikur er sérstaklega mikilvægur."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×