Innlent

Krefjast 5.000 tonna neyðarkvóta í ýsu

Fyrirsjáanlegt er að kvóti í ýsu verði skertur, en á sama tíma krefjast sjómenn aukningar.
Fyrirsjáanlegt er að kvóti í ýsu verði skertur, en á sama tíma krefjast sjómenn aukningar. Fréttablaðið/Stefán
Landssamband smábátaeigenda krefst þess að ýsukvóti verði aukinn um fimm þúsund tonn án tafar, svo hægt sé að mæta meðafla við þorskveiði. Kaup á ýsukvóta, til að mæta meðafla, eru svo gott sem vonlaus. Þegar hafa smábátasjómenn neyðst til að hætta veiðum með yfirvofandi atvinnuleysi.

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, útskýrði þessa stöðu fyrir atvinnuveganefnd Alþingis á fundi nefndarinnar í gær, þar sem staða sjávarútvegsins var til umfjöllunar.

Örn bætti við að þegar hafa smábátasjómenn þurft að kaupa ýsukvóta til að mæta meðafla fyrir hálfan milljarð króna, og útgerðarkostnaður hefur stóraukist vegna flótta undan ýsu á hefðbundnum krókamiðum, en sjómenn ná vart á hrein þorskmið sem liggja of djúpt fyrir krókabátana.

„Það er óþolandi að þurfa að leita að blettum þar sem eingöngu fæst þorskur, og þetta hefur valdið því að olíukostnaður hefur rokið upp úr öllu valdi,“ sagði Örn og gagnrýndi Hafrannsóknastofnun hart fyrir ráðgjöf sína í ýsuveiðinni. Sagði hann varfærni Hafró keyra fram úr öllu hófi.

Björn Ævarr Steinarsson, forstöðumaður veiðiráðgjafarsviðs Hafrannsóknastofnunar, sat fundinn en aðspurður aftók hann að ýsukvóti yrði aukinn til að mæta vandræðum sjómanna. Minnti hann á að fimm til sex lélegir ýsuárgangar hefðu mælst á undanförnum árum, og það segði ekki alla söguna þó veiðin væri ágæt og mikið að sjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×