Fimmtán ára stúlka myrt á Indlandi Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2014 11:39 Fjölmörg mótmæli hafa verið haldin í Indlandi síðustu ár gegn nauðgunum. Vísir/AFP
Fimmtán ára stúlka fannst látin í austurhluta Indlands, en talið er að henni hafi verið nauðgað áður en hún var myrt. Degi áður hafði henni verið hótað af öldungum þorpsins sem fjölskylda hennar býr í, eftir að hún sakaði þá um að áreita föður sinn. Samkvæmt frétt BBC um málið segir fjölskylda stúlkunnar að hún og faðir hennar hafi verið kallaðir fyrir öldungana til að útkljá deilu um traktor. Eftir að hún sakaði þá um að áreita föður sinn neyddu þeir hana til að hrækja á jörðina og sleikja það upp aftur, en það er álitin vera mikil niðurlæging á svæðinu. Á meðan réttarhöldin vegna deilunnar um traktorinn stóðu yfir hvarf stúlkan. Lík hennar fannst degi seinna, hálf-nakið, við lestarteina í nálægð við þorpið. Fjölskylda hennar hefur lagt fram kvörtun gegn 13 einstaklingum í þorpinu en enginn hefur verið handtekinn. Þá segja íbúar þorpsins við fréttaritara BBC að atvikið hafi orðið vegna pólitískra deilna á milli fjölskyldu stúlkunnar og öldunganna. Fyrr á þessu ári varð kona í öðru þorpi á svæðinu fyrir hópnauðgun, sem sögð er hafa verið skipuð af öldungum þorpsins sem hún bjó í. Ástæðan mun vera að þeir hafi verið á móti sambandi hennar við mann frá öðru þorpi. Þá segir lögreglan að árið 2010 hafi öldungar í nálægu þorpi neytt þrjár konur til að ganga naktar í gegnum hóp af fólki. Þar mun sama ástæða hafa legið að baki.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Sjá meira