Neytendur kvarta yfir gjaldi á pakka hjá Íslandspósti Brjánn Jónasson skrifar 23. janúar 2014 08:54 Þjónusta við þá sem þurfa að fá starfsmenn Íslandspósts til að opna pakka til að ná í reikning hækkaði úr 550 krónum í 1.050 krónur um áramót. Fréttablaðið/Arnór
Kvartað hefur verið yfir nýju 500 króna gjaldi Íslandspósts fyrir að leita að reikningi í pökkum til Póst- og fjarskiptastofnunar. Neytendasamtökin gagnrýna fyrirtækið harðlega fyrir að rjúfa sátt um að veita verðbólgunni viðnám með því að hækka ekki verð. Þeir sem fá pakka senda frá útlöndum þurfa að framvísa reikningi til að sýna fram á verðmæti sendingarinnar svo hægt sé að afgreiða hana í tollinum. Hingað til hefur Íslandspóstur innheimt 550 króna gjald fyrir tollmeðferð. Innifalið í því verði hefur verið sú þjónusta að opna pakkana, óski viðtakandi þess, til að finna reikning sem sendandinn hefur látið með sendingunni. Með breytingum á gjaldskrá Íslandspósts, sem tóku gildi um áramót, hófst innheimta 500 króna gjalds þurfi starfsmenn að opna pakka til að finna reikning. Þeir sem vilja nýta sér þá þjónustu greiða því 1.050 krónur fyrir afgreiðslu pakkans, í stað 550 króna fyrir áramót.Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir ákveðna þætti í starfsemi Íslandspósts heyra undir stofnunina. Póst- og fjarskiptastofnun hafi borist kvartanir frá neytendum vegna þessarar nýju gjaldtöku, og stofnunin muni fjalla um þær kvartanir og senda frá sér ákvörðun.Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Íslandspósts, segir að frá áramótum hafi móttakendur um 1,2 prósenta sendinga sem borist hafi kosið að nota sér þessa þjónustu. Það séu um 200 bögglar. Tekjur Íslandspósts af gjaldinu nema því um 100 þúsund krónum á tæpum mánuði. Þessu til viðbótar fór Íslandspóstur að bjóða upp á sérstaka flýtimeðferð í póstmiðstöð, sem einnig er rukkað 500 króna gjald fyrir ef neytendur vilja nýta sér það. Frá áramótum hafa um 1.200 nýtt sér þann möguleika, og Íslandspóstur því haft um 600 þúsund krónur í tekjur af þeirri þjónustu. Brynjar leggur áherslu á að þessi þjónusta sé valfrjáls. Fólk sem panti vörur á netinu eigi að fá reikning í tölvupósti og sé í lófa lagið að koma afriti til póstsins. Flestir kjósi að vísa fram reikningi en aðrir kjósi að kaupa þjónustu af fyrirtækinu. „Neytendasamtökin hafa áhyggjur af því að með þessu nýja gjaldi sé póstverslun gert enn erfiðara fyrir og gjaldtakan muni hindra samkeppni enn frekar,“ segir í frétt Neytendasamtakanna. Bent er á að Íslandspóstur hafi átt fulltrúa í starfshópi stjórnvalda sem skilaði tillögum um að einfalda póstverslun og virkja þannig samkeppni að utan.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Kampakát Kristrún og Trump í New York Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Sjá meira