Óvissa um framhald viðræðna Jóhanna Margrét Einarsdóttir skrifar 23. janúar 2014 13:32 Menn eru að melta niðurstöðuna úr atkvæðagreiðslunni og reyna að vega og meta hvað hún þýðir,“ segir Þórður Hjaltested, formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/Vilhelm „
Það er óvissa um hvert framhaldið verður. Við höfðum skynjað að bæði ríki og sveitafélögin voru að bíða eftir niðurstöðu úr atkvæðagreiðslu ASÍ félaganna,“ segir Þórður Hjaltested formaður Kennarasambands Íslands og bætir við að þetta sé furðuleg staða. „Menn eru að melta niðurstöðuna úr atkvæðagreiðslunni og reyna að vega og meta hvað hún þýðir.“ Um helmingur félagsmanna í aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands felldi í gær kjarasamning sem skrifað var undir í desember. Óvissa ríkir um hvert framhald kjaraviðræðna verður. Í febrúar var ætlunin að hefja gerð kjarasamnings til lengri tíma á almenna vinnumarkaðnum en forseti Alþýðusambandsins sagði í gær að þær áætlanir væru í uppnámi. Þórður segir að viðræður við kennara hafi ekki verið komnar á skrið, það hafi ekki verið kominn neinn þungi í þær. „Þetta eru fyrstu alvöru kjaraviðræður kennara frá því að ný lög um menntun kennara tóku gildi en nú verða þeir að ljúka fimm ára háskólanámi til að fá réttindi til að kenna. Þessar viðræður skipta því miklu máli,“ segir Þórður og bætir við að kennarar séu tilbúnir að semja til lengri tíma að því skildu að laun þeirra verði kerfisbundið hækkuð á tímabilinu. Hann segir að kennarar hafi ekki nefnt neinar prósentutölur hvað varðar hækkun launa þeirra, þeir hafi talað fyrir þjóðarsátt um leiðréttingu launa. Í tveimur skýrslum OECD sé bent á að það verði að bæta kjör kennara ef eðlileg endurnýjun eigi að vera í stéttinni og ungt fólki kjósi að gera kennarastarfið að ævistarfi. „Það hefur hins vegar legið fyrir ef það á að leiðrétta kjör kennara til samræmis við stéttir sem hafa sambærilega menntun þá þarf að hækka laun þeirra um meira en 2,8 prósent eins og samið var um á almenna markaðnum,“ segir Þórður.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira