Líf Magneudóttir sækist eftir 1. sæti hjá VG Stefán Árni Pálsson skrifar 23. janúar 2014 15:39 Líf Magneudóttir gefur kost á sér í 1. sæti. mynd/aðsend
Líf Magneudóttir gefur kost á sér í 1. sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík en valfundur hreyfingarinnar fer fram þann 15. febrúar. Líf hefur setið í skóla- og frístundaráði fyrir Vinstri græn frá kosningunum 2010. „Við búum í ólíkum hverfum, við ólíkar aðstæður“ segir Líf Magneudóttir. „samt eigum við ótal margt sameiginlegt. Ég hef fundið fyrir því að að Reykvíkingar vilja hafa bein áhrif á borgina sína.“ Að mati Lífar er ekki nóg að gefa Reykvíkingum kost á því að velja hvort ráðist sé í að laga rólur á leikskólum eða gera við gangstéttar. Það á ekki að vera þörf á því að kjósa um eðlilegt viðhald. „Það er líka löngu tímabært að rjúfa þá múra sem hafa risið á milli stjórnmálanna og íbúa Reykjavíkur,“ segir hún. „Það er kominn tími til að fá íbúa að borðinu til að taka ákvarðanir um mál sem snerta þá og hafa áhrif á umhverfi þeirra og framtíð. Jafnt í stórum og mikilvægum málum sem varða alla sem og þeim er varða færri en geta skipt þann hóp miklu. Við þurfum að byggja upp samfélag og borg sem einkennist af samhug og samtakamætti.“ Kallað er eftir jöfnuði, jafnrétti kynjanna, umhverfisvernd, rétti komandi kynslóða, lýðræðislegum vinnubrögðum, gagnsæi og framsýni. „Allt eru þetta áherslur Vinstri grænna. Það þarf átak til að leiða fram breytingar, þær falla ekki af himnum ofan. Reykjavík er frábær borg og saman getum við gert hana betri. Ég er tilbúin til þess að leggja mig alla fram um að leiða fram breytingar sem skipta máli fyrir borgarbúa. Ég vil auka áhrif þeirra, tryggja heilsusamlegt umhverfi og mannvæna borg fyrir unga sem aldna. Því sækist ég eftir því að leiða Vinstri græn í kosningunum í vor og taka þátt í að móta borg framtíðarinnar með íbúum hennar.“ Líf er fædd árið 1974. Hún er í sambúð með Snorra Stefánssyni lögmanni og eiga þau fjögur börn á aldrinum eins til þrettán ára. Þau búa í Vesturbæ Reykjavíkur. Líf er grunnskólakennari að mennt og lýkur í vor meistaragráðu í íslenskukennslu.
Mest lesið Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Innlent Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” Innlent Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Innlent Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Innlent Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Innlent „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Erlent Fleiri fréttir Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Bíll konunnar sást á upptöku Þáttastjórnendum X-sins sagt upp Líta málið „mjög alvarlegum augum“ Hella áfenginu niður og hringja í foreldra Tuttugu milljónir í bankanum og kona í gæsluvarðhaldi Sjá meira