Pörupiltarnir fræða unglinga um kynlíf Gunnar Leó Pálsson skrifar 11. febrúar 2014 10:30 Leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir hér í gervi Pörupiltanna, Nonna Bö, Hermanns Gunnarssonar og Dóra Maack. fréttablaðið/pjetur „
Hugmyndin að sýningunni sprettur í raun af annarri sýningu, Homo Erectus, sem við settum upp árið 2011. Unglingar sækja leikhús frekar lítið og okkur fannst vanta svona sýningu,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir leikkona og einn höfunda verksins Kynfræðsla Pörupilta sem leikhópurinn Pörupiltar setur upp. Ásamt Sólveigu skipa leikkonurnar Alexía Björg Jóhannesdóttir og María Pálsdóttir leikhópinn Pörupilta og eru þær einnig höfundar verksins. Leikkonurnar þrjár klæða sig upp sem stráka. „Pörupiltarnir, þeir Nonni Bö,Hermann Gunnarsson og Dóri Maack, eru vel meinandi og hressir. Þeir telja sig vita allt um kynlíf þó að þeir stundi það ekki allir sjálfir,“ útskýrir Sólveig. Saga Pörupiltanna er þannig að þeir hafa verið lengi á atvinnuleysisbótum og átti því að taka þá af bótum nema þeir færu að sinna samfélagsstörfum. „Þess vegna fóru þeir út í að halda þessa kynfræðslu.“ Sýningin er í raun kynfræðsla og er nemendum í 10. bekk í flestum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu boðið á sýninguna. „Nemendum í 10. bekk er boðið en við verðum líka með opna sýningu í mars. Ef þetta gengur vel getur verið að við förum með sýninguna víðar,“ segir Sólveig. Verkefnið er styrkt af Hlaðvarpanum, Samfélagssjóði Landsbankans, Sprotasjóði og unnið í samstarfi við Borgarleikhúsið. Pörupiltarnir fengu ráð frá kynlífssérfræðingnum Siggu Dögg og einnig frá nemendum Kvennaskólans í Reykjavík. „Við erum auðvitað þrjár settlegar mömmur og því gaman að geta brugðið sér í annan karakter. Við fengum ráð og punkta frá mörgum aðilum til að gera sýninguna sem besta.“ Leikkonurnar hófu sitt samstarf sem Pörupiltar árið 2006 og settu, eins og fyrr segir, upp uppistandssýninguna Homo Erectus í Þjóðleikhúskjallaranum árið 2011 með þessar sömu persónur. „Homo Erectus var meira um samskipti kynjanna og þess háttar en sýningin núna er meira um kynlíf og kynfræðslu.“ Kynfræðslan verður frumsýnd á morgun í Borgarleikhúsinu fyrir 10. bekkinga en tvær opnar sýningar verða 23. og 30. mars. „Við sjáum svo til með framhaldið, mögulega gerum við meira úr sýningunni.“
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Sjá meira