„Þessi hækkun er alveg glórulaus“ Stefán Árni Pálsson skrifar 11. febrúar 2014 15:17 Pétur Sigurgunnarsson hefur glímt við kæfisvefn í 13 ár. mynd/samsett
Pétur Sigurgunnarsson hefur glímt við kæfisvefn í 13 ár og sefur hann allar nætur með sérstaka kæfisvefnsgrímu. Kostnaður sjúklingsins af hjálpatækinu hefur hækkað um 77%. „Ég er einn af mörg þúsund manns á Íslandi sem þarf að sofa með svokallaða kæfisvefnsgrímu,“ segir Pétur Sigurgunnarsson, í samtali við Vísi.Heilbrigðisþjónusta hækkaði um tæp 5% í janúar að því er fram kom í vísitölumælingu Hagstofunnar í liðinni viku en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ASÍ. Sem dæmi um áhrif einstakra breytinga má nefna að kostnaður sjúklings af hjálpartæki vegna kæfisvefns fór úr 18.000 krónum á árinu 2013 í 31.800 krónur í ár, sem er 77% hækkun. „Áður fyrir þurfti ég að greiða 4500 krónur í þjónustu gjald á þriggja mánaða fresti sem gerir 1500 krónur á mánuði. Núna fékk ég greiðsluseðil frá Landsspítalanum upp á 2650 krónur og fékk ég þær skýringar að um væri að ræða mánaðargjald. Ég greiði því 7950 krónur fyrir þjónustu sem ég hef áður greitt 4500 krónur fyrir.“Kæfisvefn er ástand sem einkennist af endurteknum öndunartruflunum í svefni ásamt syfju þegar fólk er vakandi. Hjá fullorðnum telst það öndunarhlé ef öndunin hættir alfarið í 10 sekúndur eða lengur. Öndunarhlé í kæfisvefni verða oftast vegna þrengsla eða lokunar í efri hluta öndunarvegarins. Þá reynir einstaklingurinn að ná andanum með sífellt kröftugri innöndunartilraunum. Í löngum öndunarhléum geta komið fram hjartsláttartruflanir. Öndunarhléin valda einnig hækkun á blóðþrýstingi. „Maður hættir reglulega að anda í svefni þegar maður glímir við kæfisvefn og þá fær blóðið ekki súrefni. Menn hafa áður fengið hjartastopp vegna kæfisvefns og því lífsins nauðsynlegt að sofa með þessar grímur. Það er allt í lagi að borga sanngjarnt gjald en þessi hækkun er alveg glórulaus.“ Pétur Sigurgunnarsson hefur glímt við kæfisvefn í 13 ár og sefur hann allar nætur með sérstaka kæfisvefnsgrímu. Kostnaður sjúklingsins af hjálpatækinu hefur hækkað um 77%.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira