Innlent

Spila fótbolta og fá háskólavist

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Háskólinn á Bifröst er i í samstarfi við knattspyrnudeild Skallagríms.
Háskólinn á Bifröst er i í samstarfi við knattspyrnudeild Skallagríms. Fréttablaðið/Pjetur
Háskólinn á Bifröst og Knattspyrnudeild Skallagríms auglýsa eftir umsóknum um um svokallaðan Bifrastarstyrk Knattspyrnudeildar Skallagríms.

Í styrknum felst að skólagjöld við háskólann eru felld niður gegn því að leikmaðurinn leiki knattspyrnu með meistaraflokki Skallagríms í eitt skólaár eða samkvæmt nánara samkomulagi. Skólagjöldin nema frá 138 þúsund krónum til 275 þúsund króna á önn eftir því hversu margar einingar eru teknar.

Sambærilegur styrkur er veittur við körfuknattleiksdeild Skallagríms.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×