Hverjir kusu gegn sannfæringu sinni? Jakob Bjarnar skrifar 25. febrúar 2014 14:48 Katrín Júlíusdóttir er meðal þeirra stjórnarmanna sem telja þingsályktunartillöguna fela í sér ávirðingar.
Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi ráðherra, hefur sent forsætisnefnd erindi þar sem hún fer fram á að ávirðingar, sem hún kallar svo, í greinargerð með tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu osfrv. á þingskjali 635 - 340. mál. -- sem er þingsályktunartillaga Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra um slit á aðildarviðræðum, verði rannsakaðar sérstaklega. Katrín tilkynnti um þetta erindi sitt á Facebooksíðu sinni nú rétt í þessu: „Undirrituð fer þess á leit við forsætisnefnd að hún fari fram á skýringu ríkisstjórnar á eftirfarandi fullyrðingu í greinargerð með ofangreindri þingsályktun: "Miðað við það sem fram hefur komið í atkvæðaskýringum, yfirlýsingum þingmanna og fleiri gögnum má jafnvel leiða að því rök að ekki hafi í raun verið til staðar meirihlutavilji fyrir málinu heldur hafi þetta verið hluti af pólitísku samkomulagi þáverandi stjórnarflokka við myndun ríkisstjórnar og atkvæðagreiðslan því tæplega lýsandi fyrir afstöðu þingmanna.“ Katrín segir að staðreyndin sé sú að þingmenn kusu einmitt þvert á flokkslínur í málinu eins og sjá má hér. Og hún heldur áfram: „En látum þá staðreynd liggja milli hluta. Það alvarlega er að í þessari fullyrðingu er ríkisstjórnin að fullyrða að einhverjir þingmenn hafi ekki greitt atkvæði samkvæmt sannfæringu sinni og þar með brotið stjórnarskrá. Undirrituð tók þátt í þessari atkvæðagreiðslu og var hluti stjórnarmeirihlutans á þessum tíma. Ég vil í ljósi þess fara fram á það að forsætisnefnd kalli eftir upplýsingum þeim sem liggja til grundvallar ofangreindri fullyrðingu og gefi þinginu yfirlýsingu að athugun lokinni á því hvort og þá hverjir ekki greiddu atkvæði sannfæringu sinni samkvæmt. Þangað til liggja allir þingmenn sem þátt tóku í umræddri atkvæðagreiðslu undir ávirðingum um stjórnarskrárbrot þar á meðal undirrituð." Og undir þetta ritar Katrín Júlíusdóttir 11 þingmaður Suðvesturkjördæmis.
Mest lesið Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Innlent Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Erlent Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Innlent Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Viðskipti innlent Hæðarhryggur yfir landinu í dag og stormur í nótt Veður Dómari stöðvar framkvæmdir við veislusalinn Erlent Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Innlent Fleiri fréttir Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Sjá meira