Fleiri sækja réttinn til húsaleigubóta Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 1. september 2014 00:01 Formaður Félags leigumiðlara segir litla hreyfingu hjá leigumiðlurum enda fari margar íbúðir í leigu til ferðamanna og enn séu margir sem gefi ekki upp leiguna. vísir/vilhelm
Um sex hundruð fleiri fengu húsaleigubætur í Reykjavík á fyrstu sex mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra og hefur kostnaður vegna bótanna hækkað um tæp fimmtán prósent. Ellý Alda Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri Velferðarsviðs Reykjavíkur, segir fjölgunina fyrst og fremst vera á almennum markaði og námsmannaíbúðum. Ellý Alda Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri velferðarsviðs ReykjavíkurborgarAðspurð segist hún ekki vita með fullri vissu hver ástæða fjölgunarinnar er, en þar sem framboð leiguhúsnæðis hefur ekki aukist sé fjölgunin líklega tengd efnahagsástandinu. „En með hliðsjón af þeim efnahagsþrengingum sem þjóðin hefur gengið í gegnum er ekki órökrétt að áætla að fleiri eigi rétt á bótum en áður vegna lægri tekna,“ segir Ellý Alda. Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda, segir líklega ástæðu fjölgunar vera að fleiri séu upplýstir um réttindi sín. Hólmsteinn Brekkan, framkvæmdastjóri Samtaka leigjenda„Við höfum hamrað á þessu við leigjendur því það eru svo margir sem hafa ekki hugmynd um bótaréttinn. Mikið af eldra fólki í þjónustuíbúðum sem við höfum talað við hefur til dæmis ekki haft hugmynd um hvað húsaleigubætur eru.“ Hólmsteinn segir fólk stóla meira á bæturnar með hækkandi leiguverði og þrýsta því meira nú en áður á leigusala að gefa leiguna upp. Svanur Guðmundsson, formaður Félags leigumiðlaraSvanur Guðmundsson, formaður Félags leigumiðlara, tekur undir það og bætir við að leigjendur séu orðnir mun meðvitaðri um rétt sinn. „Ég veit af fjölmörgum dæmum þar sem leigjendur fara með samning í þinglýsingu og sækja svo um bætur, þrátt fyrir munnlegt samkomulag við leigusala um að gefa ekki upp leiguna,“ segir Svanur. „Enda á ekkert að þurfa að spyrja eigandann hvort það megi þinglýsa samningnum. Það munar svo miklu fyrir fjölskyldur að fá bæturnar og leigusalar geta lítið gert við þessu, annað en að segja leigusamningnum upp, sem gerist stundum.“ Svanur segir þó einnig mörg dæmi þess að leigusalar vilji ekki leigja út íbúðir sínar til þeirra sem ætla að sækja um bætur, sem þýðir að erfiðara getur verið fyrir þá verst stöddu að fá íbúðir til leigu. „Og vegna svo mikillar eftirspurnar eftir leiguíbúðum hafa leigusalar mikil völd.“
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira