Ný reglugerð tryggir endurgreiðslu tímabundið Samúel Karl Ólason skrifar 12. febrúar 2014 10:36 Vísir/Anton Brink
Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, hefur sett reglugerð sem tryggir fólki endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara þrátt fyrir að þeir starfi án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Reglugerðin tekur til þjónustu sem veitt er á tímabilinu 7. febrúar sl. til 1. maí næstkomandi. Ráðherra undirritaði ekki rammasamning milli Sjúkratrygginga Íslands og sjúkraþjálfara vegna þess að áherslur samningsins samrýmast ekki forsendum fjárlaga. Þeir sem sækja sér þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara, eftir að nýja reglugerðin var sett á, þurfa þó sjálfir að sækja endurgreiðsluna til Sjúkratrygginga Íslands. „Reglugerðin fjallar um þjónustu sjúkraþjálfara sem reka eigin starfsstofur utan sjúkrahúss við einstaklinga sem eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum. Forsenda fyrir endurgreiðslu sjúkratrygginga vegna þjálfunar er að fyrir liggi skrifleg beiðni frá lækni þar sem sjúkdómsgreining kemur fram. Þó er heimilt að víkja frá kröfu um skriflega beiðni læknis vegna bráðameðferðar sem nemur allt að sex skiptum á einu ári,“ segir í tilkynningu frá Velferðarráðuneytinu. „Sjúkratryggður sem þarf á þjálfun að halda samkvæmt mati á rétt á allt að 20 skiptum í meðferð á ári en í reglugerðinni er kveðið á um heimildir til að fjölga þeim að tilteknum skilyrðum uppfylltum.“
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira