Hætti í skóla fyrir sönginn Ellý Ármanns skrifar 12. febrúar 2014 14:45 myndir/einkasafn ásdísar
Ásdís María Viðarsdóttir 20 ára hætti í námi í Menntaskólanum í Hamrahlíð þegar lagið Amor eftir Hauk Johnson var valið í söngvakeppni sjónvarpsins. Ásdís starfar í fataversluninni Spúútnik á daginn og á veitingahúsinu Argentínu á kvöldin á milli þess sem hún kjarnar sig fyrir úrslitin á laugardaginn. Við flettum með Ásdísi í gegnum albúmið hennar og spurðum hana meðal annars hvernig það kom til að hún tók þátt í söngvakeppninni í ár. Hér er ég með kisuna mína sem ég eignaðist þegar ég var lítil. Ég er fáránlega mikil kisukona. Ég á fjórar kisur og einn hund. Fékk facebook-skilaboð frá lagahöfundi „Ég ákvað að taka þátt því það var svo heimskulegt að gera það ekki því ég er ung og ekki þekkt eða neitt og mig langar að verða söngkona. Eurovision er fáránlega skemmtileg. Ég hélt ég væri ekki Eurovisionaðdáandi en ég er það,“ viðurkennir Ásdís. „Þetta voru bara facebook-skilaboð sem ég fékk frá Hauki sem samdi lagið – voðalega órómantísk saga. Við þekktumst ekki neitt. Hann sá mig í söngvakeppni framhaldsskólanna árið 2013 þegar ég söng fyrir MH.“ Ásdís með Þorbjörgu Gunnarsdóttur vinkonu sinni.Hefur þú fengið góð viðbrögð við laginu? „Já, já, það eru allir hæstánægðir. Það var til dæmis rosa gaman að fara niður í bæ á laugardeginum,“ svarar Ásdís kát.Ég hef ekki hætt að syngja siðan ég var lítil.Hefur þú lært söng? „Ég var hjá Þorgerði Ingólfsdóttur í menntaskólakórnum, þar lærði ég ekki tæknilega söng en ég lærði ótrúlega mikið um tónlist.“ Hvernig undirbýrð þú þig fyrir úrslitin? „Ég er bara að kjarna mig. Ég er að reyna að taka það rólega. Ég æfi mig eitthvað en ég á svo erfitt með það því ef ég er að syngja eitthvað frá sálinni þá á ég erfitt með að halda mig við endanlegu útgáfuna. Ég á eftir að æfa mig mörgum sinnum og syngja öðruvísi á laugardaginn - því ég syng með sálinni,“ segir hún einlæg. Ertu stressuð fyrir laugardeginum? „Já, ég er að stress-borða svolítið mikið. Ég er alltaf svöng. Ég vinn sem barþjónn og ég borðaði til að mynda öll mangóin og alllar ólivurnar í gær en ég er að passa mig að halda mig niðri á jörðinni. Það er svo óheillandi þegar fólk missir alla hógværð.“ Að lokum - ertu lofuð? „Já ég er það,“ svarar þessi hæfileikaríka söngkona.Twittersíðan hennar
Mest lesið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Fleiri fréttir Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Sjá meira