Skattar njóta forgangs við gjaldþrotaskipti Jóhannes Stefánsson og Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. febrúar 2014 00:00 Dómurinn er áhugaverður vegna umræðu um bankaskattinn.
Hæstiréttur staðfesti í gær að opinber gjöld teldust til skiptakostnaðar í þrotabúum að því marki sem það fellur til eftir að fyrirtæki hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptakostnaður nýtur forgangs í kröfuröð kröfuhafa sem gera kröfu í þrotabú, samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti. Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar í máli Fjármálaeftirlitsins (FME) gegn EA fjárfestingafélagi sem féll í gær. Málavextir voru þeir að FME hafði lýst kröfu í bú félagsins (sem áður hét MP banki hf.) vegna sérstaks eftirlitsgjalds. Eftirlitsgjaldið er sérstakur skattur sem fjármálafyrirtæki greiða og er ætlað að standa undir kostnaði með eftirliti þeirra af hálfu FME. Dómurinn er áhugaverður vegna umræðu um bankaskattinn, þ.e. fyrirhugaða skattlagningu á skuldir fjármálafyrirtækja og fjármálafyrirtækja í slitameðferð, sem lögfestur var í desember. Í málinu krafðist FME þess að krafan myndi njóta forgangs í þrotabúið en EA fjárfestingafélag hafnaði forgangsáhrifum kröfunnar. Félagið hélt því fram að forgangur kröfunnar væri í andstöðu við meginregluna um jafnræði kröfuhafa og að hvergi væri tekið fram í lögum að skattar gætu talist til skiptakostnaðar, sem líkt og fyrr greinir nýtur forgangs við gjaldþrotaskipti.Opinber gjöld sem eru lögð á vegna starfsemi teljast til skiptakostnaðar Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á þessar röksemdir fjárfestingafélagsins og sagði meðal annars að vegna tilgangs lagagreinarinnar um forgangsáhrif skiptakostnaðar „telur dómurinn ljóst að rétthæð lögákveðins skiptakostnaðar, önnur en sem almenn krafa, verði að byggja á skýrri lagaheimild."FME kærði úrskurð héraðsdóms til Hæstaréttar, sem sneri honum við. Hæstiréttur rökstyður niðurstöðu sína með eftirfarandi hætti: „Opinber gjöld, sem lögð eru á þrotabú vegna starfsemi þess eftir upphaf gjaldþrotaskipta, teljast til skiptakostnaðar samkvæmt 2. tölulið 110. gr. laga nr. 21/1991." EA fjárfestingabanka var því gert að skipa eftirlitsgjaldi FME að fjárhæð 11.667.000 með dráttarvöxtum fremst í kröfuröðina. Athygli vekur að Hæstiréttur notar orðalagið „vegna starfsemi þess“ í forsendum sínum en af þeim sökum er ekki hægt að fullyrða að dómafordæmið gefi grænt ljós á bankaskattinn þar sem rökstyðja má að bankaskattur sé ekki beint sprottinn af „starfsemi“ fjármálafyrirtækja í slitameðferð.
Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira