BHM hafnar ASÍ samningunum á fjölmennum fundi Heimir Már Pétursson skrifar 6. febrúar 2014 20:18
Kjarasamningar á almennum markaði eru ekki grundvöllur samninga háskólamenntaðara starfsmanna hjá hinu opinbera að mati formanns BHM. Tryggja þarf sambærileg kjör og í nágrannalöndum og snúa við flótta háskólamenntaðs fólks úr landi. Kjarasamningum á almennum markaði í desember sem um helmingur félagsmanna ASÍ felldi var ætlað að stuðla að lækkun verðlags og stöðugleika í efnahagsmálum. Það er algerlega óvíst hvort þær forsendur náist því ósamið er m.a. við framhaldsskólakennara og félagsmenn BHM sem boðaði til fjöldafundar í Háskólabíói í dag og sætta sig ekki við hækkanir sem samið var um á almennum markaði.Guðlaug segir að keyrt verði á að ná fram meiri hækkunum en eru í ASÍ samningunum.vísir/pjeturUm níu hundruð manns sóttu fundinn í Háskólabíói sem einnig var sendur út til félagsmanna um allt land á netinu, en semja þarf fyrir hönd um átta þúsund félagsmanna. Formaður félagsins segir kröfuna einfalda; semja þurfi um afgerandi launaleiðréttingu. „Að baki er langt tímabil stöðnunar í launum háskólamenntaðra. Störf okkar fólks hafa verið verðfelld og það þarf að leiðrétta. Undanfarin ár hafa verið tími þolinmæði, ábyrgðar og úthalds. Þar er ég ekki að segja ykkur neinar fréttir,“ sagði Guðlaug Kristjánsdóttir formaður BHM í ávarpi sínu til fundarmanna. Formaðurinn kynnti til sögunnar formenn einstakra aðildarfélaga BHM en félögin semja öll sameiginlega að þessu sinni. Borin var upp ályktun sem samþykkt var einróma með standandi lófaklappi og formaðurinn segir að keyrt verði á að ná fram meiri hækkunum en eru í ASÍ samningunum.Nú hafa forsendur þeirra samninga sagðar vera að stuðla að lækkun verðlags og auknum kaupmætti. Þið kaupið ekki þau rök?„Markmiðið er gott. Staðan er hins vegar sú að það að hreyfa hægt og lítið laun háskólamenntaðara á Íslandi er bara leið til fortíðar. Við getum ekki unað við það. Við getum ekki fest í sessi neyðarástand síðustu ára,“ segir Guðlaug. Frá hruni hafi áherslan verið lögð á lægstu launin og millistéttin setið eftir. „Þar með höfum við verið að verðfella störf háskólamenntaðra og við drögumst aftur úr í samkeppni um þetta vinnuafl á alþjóðlegum vinnumarkaði og við þurfum að laga þetta,“ segir Guðlaug. Mikill hugur var í fundarmönnum. Rúna Stína Ásgrímsdóttir sagðist vilja melta boðskap formannsins. „En það er alveg ljóst að við þurfum eitthvað að gera í þessum kjaramálum hjá okkur,“ sagði hún. Guðmundur Guðjónsson félagi í BHM segist tilbúinn í verkfall til að þrýsta á um betri laun. „En ekki endilega betri laun heldur til að ná betri kjörum og fá aðeins til baka af því sem við höfum lækkað núna undanfarið,“ sagði Guðmundur.Mikill hugur var í fundarmönnum í Háskólabíói.vísir/pjetur
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira