Almenningur beðinn um að tilkynna dýraníð Jakob Bjarnar skrifar 13. janúar 2014 13:08 Furðu margar tilkynningar um illa meðferð á dýrum koma lögfræðingnum Árna Stefáni Árnasyni í opna skjöldu. vísir/Stefán
Á síðasta ári bárust Matvælastofnun alls 371 ábending um illa meðferð á dýrum; 215 vegna búfjár og 156 vegna gæludýra. Eftirlit með aðbúnaði dýra hefur verið skert. Um áramót tóku ný lög um velferð dýra gildi og einnig ný lög um búfjárhald. Þar með fluttust verkefni búfjáreftirlitsmanna til Matvælastofnunar. Búfjáreftirlitsmenn, sem störfuðu hjá sveitarfélögunum, voru um 40 manns en áætluð stöðugildi þeirra voru 10 – 12. Matvælastofnun hefur ráðið sex starfsmenn í þeirra stað í samræmi við stefnu stjórnvalda og fjárheimildir Alþingis.Árni Stefán Árnason lögfræðingur hefur sérhæft sig í réttarstöðu dýra. Honum lýst afar illa á að fjárheimildir til eftirlits með aðbúnaði dýra séu skornar niður. „Þetta kemur mér mjög á óvart. Ný dýraverndunarlög tóku gildi fyrsta janúar og þau kveða á um að eftirlit skuli hert. Og að yfirvöld skuli draga úr fjármagni til þessa eftirlits kemur mér í opna skjöldu því einmitt hið gagnstæða var mikilvægt; að það yrði aukið. Þetta hef ég gagnrýnt. Eftirlit hefur verið mjög bágborið. Matvælastofnun þarf sannarlega á auknu fjármagni að halda til að geta staðið við þær skuldbindingar sem kveðið er á um í lögunum.“Bændum mun bregða Fjárheimildin felur að mestu í sér að Matvælastofnun er ætlað að afla eigin tekna, það er að innheimta gjald fyrir framkvæmt eftirlit. Kann mörgum bændum að bregða við að fá reikning frá Matvælastofnun í kjölfar heimsóknar. Stefnt er að því að aðeins einn eftirlitsmaður komi að jafnaði frá stofnuninni til að sinna öllu eftirliti í hverri heimsókn, misjafnt verður þá hvort eftirlitsmaðurinn er dýralæknir eða búvísindamaður að mennt, allt eftir því hvað til stendur að skoða hverju sinni. Eftirlit Matvælastofnunar með dýrahaldi og matvælaframleiðslu á frumframleiðslustað er umfangsmikið. Auk þess að þarf að bregðast við öllum ábendingum um illa meðferð á dýrum. Í nýrri tilkynningu frá stofnuninni segir að vegna fækkunar starfa í reglubundu eftirliti með dýrahaldi verður Matvælastofnun að treysta meira á almenning. Stofnunin hvetur fólk til að láta vita ef það hefur grun um illa meðferð á dýrum.Ótrúlega margar tilkynningar Eins og áður sagði bárust Matvælastofnun alls 371 ábending um illa meðferð á dýrum; 215 vegna búfjár og 156 vegna gæludýra. Þessi staðreynd kemur Árna Stefáni lögfræðingi einnig mjög á óvart. „Já, það gerir það. Vegna þess að ég hefði haldið að við værum komin ögn lengra. Umtalið um velferð dýra á síðastliðnum árum hefur verið mjög mikið og ég hefði ekki búist við að það væru svona margar tilkynningar. Eflaust eiga einhverjar þeirra ekki við nein rök að styðjast og eru byggð á misskilningi. Engu að síður, tölurnar tala sínu máli, og þetta kemur mér á óvart.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira