Biður fólk að kjósa sig í Playboykeppni Ellý Ármanns skrifar 19. febrúar 2014 15:30 myndir/playboy
Arna Bára Karlsdóttir, hárgreiðslukona, og Playboy-fyrirsæta vonast eftir að sigra forkeppni sem fram fer á internetinu svo hún komist í bikiníkeppni sem ber yfirskriftina Miss International Bikini Model Search en keppnin fer fram í Mexíkó. Arna trónir nú í fyrsta sæti í þessari netkeppni en úrslitin verða kynnt eftir níu daga. Arna leitast við að safna pening fyrir unnusta sinn, Heiðar Árnason, svo hann geti farið með henni út.Kærastinn ætlar út með Örnu „Ég er að fara í keppni á vegum The Bikini Model Search, Playboy í Mexíkó, Maxim og FHM. Ég fæ allt borgað fyrir mig en Heiðar ætlar að fara með mér út til að styðja mig. Hótelpakkinn kostar um 140 þúsund íslenskar krónur fyrir allt „eventið“ en með því að vinna þessa keppni á netinu fæ ég pakkann fyrir hann frían og VIP passa inn á allt sem er þarna. Þar að auki fæ ég allskonar námskeið og kemst beint í úrslit í keppninni sem að ég er að fara í,“ útskýrir Arna.Hvernig undirbýrðu þig fyrir þessa keppni? „Ég hef verið að æfa frá klukkan 9-12 alla virka daga. Eftir vinnu á laugardögum í sirka fjóra tíma. Ég er með grenningarráðgjafa hann Sverri Björn Þráinsson en hann er með skrifstofu upp í Sporthúsi. Hann er algjör snillingur og ég mæli hiklaust með honum. Svo er ég komin með íslenskan bikiníspons og ég fæ alveg sjúklega flott keppnisbikiní með mér út. Hún heitir Freydís og er með þessa Facebooksíðu. „Svo ef einhver fyrirtæki vilja „sponsa“ mig í þessari keppni og í undirbúningnum þá má viðkomandi senda mér tölvupóst á netfangið arnamodel@gmail.com," segir hún.Hvetur fólk til að kjósa sig „Kosningin í þessari keppni er mjög auðveld. Þú opnar þennan link, „lækar“ myndina, deilir henni eða setur inn athugasemd en allt telur. Sú sem fær flest af öllu þessu vinnur keppnina. Það tekur enga stund að smella allavegana einu „like-i“ á myndina mína. Ég yrði mjög þakklát ef fólk myndi vilja hjálpa mér og gleðja unnustann minn," segir hún.Arna og Heiðar.Hér má kjósa Örnu (linkur á Facebook).
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira