Þjóðdans poppstjarna Baldvin Þormóðsson skrifar 7. maí 2014 18:30 Alexander Roberts og Ásrún Magnúsdóttir eru fjölhæfir danshöfundar. vísir/stefán „
Þetta er sem sagt dansrannsókn sem snýr að hreyfigetu poppstjarna, við erum að rannsaka hreyfingar þeirra og hvert hlutverk hreyfingar sé innan tónlistarinnar,“ segir Ásrún Magnúsdóttir danshöfundur en hún vinnur að dansrannsókninni ásamt Alexander Roberts. „Við erum að velta fyrir okkur hlutverki líkamans á sviði,“ segir Alexander. „Í tónlist þá einbeitum við okkur augljóslega að tónlistinni, en síðan er allt önnur vídd sem snýr að líkama tónlistarmannsins og nærveru hans á sviðinu.“ Verkefnið er ekki fyrsta rannsókn tvíeykisins en seinast rannsökuðu þau dansmenningu Reykvíkinga. „Hugmyndin að þessari rannsókn spratt svolítið út frá því,“ segir Ásrún. „Við skoðuðum þær aðstæður þar sem líkaminn er oft hundsaður og bjuggum til eins konar þjóðdans Reykvíkinga, en núna vildum við taka fyrir nýjan hóp og sjá hver dans þeirra væri.“Tuttugu mínútna tónleikar án hljóðs Alexander og Ásrún hafa þegar hafið störf með einni af tveimur poppstjörnum sem taka þátt í rannsókninni. „Það var mjög áhugavert að sjá hvað hann var í raun meðvitaður um hreyfingar sínar og hafði pælt í þeim áður,“ segir Ásrún en verkið verður með því sniði að hver stjarna flytur tuttugu mínútna dansverk án hljóðs. „Þetta eru í raun tónleikar með tónlistarmanninum nema hreyfingin er aðalatriðið,“ segir Alexander um dansverkið. „Þannig er grunnhugmyndin en síðan vitum við náttúrlega ekki hvort það sé algjör hörmung, það er hluti af rannsókninni,“ segir Ásrún og hlær. Danstvíeykið ætlar sér þó að fara lengra með rannsóknir sínar á tengslum dans og tónlistar. „Við erum að búa til nokkra útvarpsþætti þar sem við skoðum mismunandi tónlistarstefnur og þær mismunandi hreyfingar sem fylgja hverri stefnu,“ segir Alexander. „Núna erum við að skoða svonefndan slamm-dans sem fylgir pönki og skoða þær hreyfingar við þá tónlist,“ segir Alexander og verkefnið er því tvíþætt: „Annars vegar er það sýningin með poppstjörnunum og hins vegar útvarpsþátturinn.“
Mest lesið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Fleiri fréttir Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Sjá meira