Sakar formann Starfsgreinasambands um trúnaðarbrest Heimir Már Pétursson skrifar 7. febrúar 2014 19:46
Formaður Starfsgreinasambandsins hefur gert sig sekan um alvarlegan trúnaðarbrest að mati formanns Framsýnar á Húsavík. En Framsýn og Verkalýðsfélagi Akraness hafi verið tilkynnt að félögin verði ekki með í samfloti í samningaviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Fjórtán verkalýðsfélög af nítján aðildarfélögum Starfsgreinasambandsins felldu kjarasamninga ASÍ við Samtök atvinnulífsins sem gerður var í Karphúsinu hinn 21. desember, en formaður Starfsgreinasambandsins hafði mælt með því að samningarnir yrðu samþykktir. Formenn Framsýnar og Verkalýðsfélags Akraness og nokkrir aðrir mæltu hins vegar ekki með samningunum.Björn Snæbjörnsson formaður Starfsgreinasambandsins og Einingar Iðju á Akureyri hefur tilkynnt ríkissáttasemjara hvaða félög muni standa saman að samningagerð í framhaldsviðræðum við Samtök atvinnulífsins undir forystu hans. Þar er ekki gert ráð fyrir Verkalýðsfélagi Akraness og Framsýn á Húsavík og segir formaður Framsýnar að þar með hafi formaður Starfsgreinasambandsins útilokað félögin frá samfloti. „Já hann hefur gert það. Hann sendi okkur bara póst í gær þar sem fram kom að okkar nærveru væri ekki óskað. Þeirra sem hafa barist hvað mest fyrir hækkun lægstu launa á Íslandi. Mér finnst þetta ömurlegt og í sjálfu sér stórfurðulegt að formaður Starfsgreinasambandsins sem á að leiða okkur saman skuli gera þetta. Þetta er ávísun á frekari sundrungu,“ segir Aðalsteinn Baldursson formaður Framsýnar.Eruð þið að útliloka þessi félög frá því samstarfi sem þarna er á ferðinni?„Nei, þetta er bara hópur sem tók ákvörðun um að vinna saman og við erum auðvitað tilbúin til að vinna með öllum, eins og við ákváðum þegar við stofnuðum þennan hóp. Við viljum ræða við Flóabandalagið, verslunarmenn og iðnaðarmennina líka. Þannig að við viljum vera í góðu samstarfi við alla aðila,“ segir Björn. Þótt að hann sé talsmaður þessa hóps þá komi hann að málinu sem formaður Einingar-Iðju enda samningsumboðið hjá einstökum félögum. „Ég held að hann verði að endurskoða sína stöðu. Þótt hann tali þannig að hann fari fram fyrir hönd Einingar-Iðju þá er hann um leið formaður Starfsgreinasambandsins og ég held að hann ætti að skoða sinn gang,“ segir Aðalsteinn.Endurspeglar þetta á einhvern hátt ágrening um áherslur við samningaborðið?„Það held ég ekki. Við vorum öll saman í að gera kröfugerð starfsgreinasambandsins (fyrir samningana í desember). Við erum öll með okkar starfsgreinar sem þarf að hlúa að og þetta er ekki ágreiningur um svoleiðis hluti,“ segir Björn Snæbjörnsson.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira