„Það eru dæmi um það að menn hafi látist vegna þessa" Jóhannes Stefánsson skrifar 25. janúar 2014 11:09 "Martraðabakteríur," sem engin sýklalyf bíta á, draga um 600 manns í Bandaríkjunum til dauða árlega. AFP/GVA
Haraldur Briem sóttvarnalæknir segir það tímaspursmál hvenær fyrsta bakteríusýkingin sem engin sýklalyf bíti á komi upp hér á landi. „Þetta er eitthvað sem við höfum augun með og erum að berjast gegn," segir Haraldur. Hann segir engan hafa greinst hingað til með slíka sýkingu hér á landi. „Það eru dæmi um það að menn hafi látist vegna þessa í löndunum í kringum okkur," segir Haraldur.Alónæmar bakteríur á þröskuldi ÍslandsHaraldur segir erfið tilfelli hafa komið upp hér á landi þar sem bakteríur hafi þróað með sér ónæmi gegn flestum sýklalyfjum, en þó ekki öllum. „Þetta er ekki stórt vandamál ennþá en við erum með vöktun á þessu og að skima fyrir þessu, sérstaklega hjá þeim sem koma af spítölum erlendis frá," segir Haraldur. „Meðferð við slíkum sýkingum getur verið tímafrek, erfið og kostnaðarsöm." Bakteríusýkingar sem engin lyf geta læknað hafa skotið upp kollinum víða um heim á seinustu árum. Slíkar bakteríur eru sagðar alónæmar, en tilkoma þeirra er einkum tvíþætt. Í fyrsta lagi hefur dregið verulega úr þróun nýrra sýklalyfja á seinustu áratugum. Í öðru lagi hafa þau sýklalyf sem þegar eru til verið notuð óspart og þannig verið stuðlað að ónæmismyndun baktería á lyfjunum. Slíkar bakteríur hafa víða erlendis verið nefndar „martraðabakteríur." Aðspurður hvort alónæmar bakteríusýkingar geti skotið upp kollinum hér á landi segir Haraldur: „Það er viðbúið að það geti gerst."Sýklalyf notuð gáleysislega Haraldur segir að mikilvægt sé að gefa bakteríustofnum ekki tækifæri til að þróa með sér ónæmi við sýklalyfjum. Því sé mikilvægt að meta vandlega hvort þörf sé á notkun sýklalyfja. „Sýklalyf eiga ekki að vera notkuð af tilefnislausu," segir Haraldur. „Auðvitað eru þetta mikilvæg lyf sem þarf að nota, en menn þurfa að gæta að sér að nota þau ekki nema það þurfi. Þau hafa því miður verið notuð nokkuð gáleysislega," bætir hann við.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Sjá meira