Einu matvörubúðinni á Eyrarbakka lokað: „Þetta er sárt" Hrund Þórsdóttir skrifar 3. mars 2014 20:00
Versluninni Vesturbúð á Eyrarbakka verður lokað í kvöld og frá og með morgundeginum verður því engin matvöruverslun í bænum. „Þetta er orðin of mikil yfirlega og samdráttur í leiðinni. Það er aðalástæðan,“ segir Finnur Kristjánsson, eigandi Vesturbúðar Er þetta sárt? „Já mjög og ekki bara fyrir mig heldur íbúa hér á Eyrarbakka almennt,“ segir hann og viðskiptavinir sem eiga erindi í verslunina þennan síðasta daga sem hún er opin, taka undir það. Finnur og meðeigandi hans hafa reynt að þjónusta eldri íbúa bæjarins vel og hann segir þá marga eiga erfitt með að sækja þjónustu annað. Hann vonar að opnuð verði ný verslun í bænum. „En ef ekki, þá þarf að sækja alla þjónustu héðan í burtu sem er mjög erfitt,“ segir Finnur. Eyrarbakki var lengi mikill verslunarstaður. „Og frægur sem slíkur,“ segir Finnur. „Hér fór öll uppskipun og verslun fyrir Suðurland fram, alla leið austur á Hornafirði, undir merkjum Vesturbúðar.“ Þannig að blómatíminn er búinn? „Kannski ekki búinn en það sverfir verulega að kaupmanninum á horninu."Siggeiri Ingólfssyni, eða Geira á Bakkanum, finnst miður að búðinni verði lokað. „Sjoppa er ekki bara sjoppa og verslun er ekki bara verslun. Hér á Eyrarbakka er þetta líka ákveðin félagsmiðstöð,“ segir hann. „En þetta eru engin endalok. Ef einar dyr lokast þá opnast einhverjar tvær aðrar og kannski opna tvær verslanir á Eyrarbakka þegar þessi lokar. Maður verður að lifa í bjartsýni,“ segir hann að lokum.
Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira