Viðskipti innlent

Ræddu saman um viðskipti

Freyr Bjarnason skrifar
Martin Eyjólfsson og Bruce Christie, varafastafulltrúi Kanada gagnvart WTO, á fundinum í gær.
Martin Eyjólfsson og Bruce Christie, varafastafulltrúi Kanada gagnvart WTO, á fundinum í gær. Mynd/Aðsend
Viðskipti Fríverslunarsamningur EFTA og Kanada, viðskipti og fjárfestingar voru til umræðu á fundi í Reykjavík í gær. Tilgangur hans var að ræða viðskipti EFTA og Kanada í víðu samhengi og framkvæmd fríverslunarsamningsins.

Þá var rætt hvort ástæða væri til að hefja viðræður um að endurskoða og víkka út samninginn svo hann taki einnig til þjónustuviðskipta, opinberra innkaupa og hugverkaverndar.

Fastafulltrúi Íslands gagnvart EFTA, Martin Eyjólfsson, sendiherra, leiðir viðræðurnar fyrir hönd EFTA. Fundum verður framhaldið í dag og taka um fjörtíu sérfræðingar frá EFTA-ríkjunum fjórum og Kanada þátt í þeim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×