Flugvirkjar hrella ferðaþjónustufólk Jakob Bjarnar skrifar 12. júní 2014 07:41 Frá samningaviðræðunum. visir/pjetur
Samtök ferðaþjónustunnar skora á flugvirkja og Icelandair að ná samningum áður en til boðaðs verkfalls flugvirkja kemur hinn 19. júní. Í ályktun stjórnar samtakanna segir að á vormánuðum hafi ferðaskipuleggjendur erlendis hætt við fjölmargar ferðir hingað til lands og séu þeir nú að íhuga að hætta við fleiri ferðir hingað á næstunni, vegna yfirvofandi verkfalls. Í tilkynningu sem samtökin hafa sent frá sér kemur fram að verkfallsaðgerðir flugstarfsmanna á vormánuðum hafi leikið ferðaþjónustuna grátt. Fjölmörg fyrirtæki í ferðaþjónustu stigu fram og lýstu yfir áhyggjum sínum og vonbrigðum með stöðu mála, en í kringum 90 flugferðum var aflýst í aðgerðunum sem hafði áhrif á hátt í 12 þúsund farþega. Samningsaðilar náðu sem betur fer saman, þannig að flugsamgöngur til og frá landinu hafa haldist opnar síðustu vikur. „Nú sitja flugvirkjar og Icelandair við samningaborðið, en flugvirkjar hafa boðað sólarhrings vinnustöðvun mánudaginn 16. júní næstkomandi. Komi til verkfalls mun það strax hafa gríðarleg áhrif, en þann eina dag eiga um 12 þúsund farþegar flug. Til samanburðar höfðu verkfallsaðgerðir nú á vormánuðum áhrif á jafn marga farþega, en á mun fleiri dögum.“ Nú er háönn ferðamannasumarsins hafin og fyrirhugaðar aðgerðir munu því skella á ferðaþjónustunni af fullum þunga. Í tilkynningunni segir að ímynd og orðspor Íslands sem ferðamannastaðar er í mikilli hættu, „enda eru öruggar samgöngur til og frá landinu eitthvað sem verður að vera hægt að treysta á.“
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira