Við Emil erum báðir góðhjartaðir gaurar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. apríl 2014 14:00 Sigurður Bogi lék í átta leiksýningum í fyrri viku í þremur leikritinum. Mynd/Auðunn
Í hvaða leikritum hefur þú leikið í vetur, Sigurður Bogi? „Ég hef verið í Emil í Kattholti, Tuma tímalausa og Gullna hliðinu. Svo tók ég þátt í hæfileikakeppni fyrir börn á Norðurlandi og var einn af sex sigurvegurum sem komu fram á barnaskemmtun Börn fyrir börn í Hofi til styrktar barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Ég söng lagið Mamma þarf að djamma og spilaði á gítar. Lagið fékk sko um 10.000 áhorf á YouTube. Þar söng ég líka með Friðriki Ómari og Jógvan Hansen lagið Húsið er að gráta.“Hvað varstu í mörgum sýningum í síðustu viku? „Ég var í átta sýningum, tveimur sem Bokki búálfur í Tuma tímalausa í Hofi, fimm sýningum sem Emil í Kattholti í Freyvangsleikhúsinu og einni sem engill í englakór í Gullna hliðinu hjá Leikfélagi Akureyrar.“Steingerður Snorradóttir og Sigurður Bogi í hlutverkum sínum sem Ída og Emil.Mynd/Ívar HelgasonEr eitthvað líkt með þér og Emil? „Við viljum öllum vel og erum góðhjartaðir gaurar en stundum frekar seinheppnir.“Ertu góður að tálga? „Já, já, alveg ágætur, skar mig reyndar á næstsíðustu sýningunni á Emil sem var númer 40.Hvernig er Bokki? „Bokki er sko búálfur, sirka 500 ára gamall sem býr heima hjá Tuma og fylgir honum hvert sem hann fer. Mannfólkið sér hann ekki en svo sér Tumi hann þegar hann fer í álfheima.“Veistu hversu oft þú hefur farið á svið á einu ári? „Ég held að það sé eitthvað um 65 sinnum síðan í október þegar Emil var frumsýndur. Svo tók ég reyndar líka þátt í Söngkeppni unga fólksins á Einni með öllu á Akureyri um verslunarmannahelgina, spilaði á sviði í miðbænum og lenti í öðru sæti með lagið Fjóla með Hvanndalsbræðum, ég spilaði á gítar og söng og Valmar Hvanndalsbróðir spilaði á harmóníku.“Hvert var fyrsta hlutverkið þitt á sviði? „Emil í Kattholti og svo hef ég leikið smá í skólanum.“Hefurðu eitthvað getað lært í skólanum í vetur? „Já, já, ég er svo heppinn að það er ekki mikið heimanám í skólanum þannig að það er allt í lagi.“Hvert er skemmtilegasta fagið? „Jarðfræði er skemmtilegust og svo væri stjörnufræði líka örugglega skemmtileg ef hún væri kennd.“Förum aðeins yfir helstu áhugamálin. „Ég er læra á fiðlu en spila meira á gítarinn og er nýbúinn að stofna hljómsveit með tveimur krökkum sem ég kynntist í Tuma, ég spila á gítar og syng, Rebekka sem lék annan Tumann er söngkona og Helgi sem lék annan Gemling álfadreng er trommari. Svo hef ég líka mikinn áhuga á raunvísindum. Ég er svolítið á skíðum og keppti á Andrésar andar leikunum núna um helgina.“Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Leikari og tónlistarmaður.“
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ Sjá meira