Viðskipti innlent

Handfylli sölu út um landið en 100 á höfuðborgarsvæðinu

Óli Kristján Ármannsson skrifar
 Þjóðskrá vekur athygli á að kaupsamningur geti verið um fleiri en eina eign.
Þjóðskrá vekur athygli á að kaupsamningur geti verið um fleiri en eina eign. Fréttablaðið/Pjetur
Þinglýstir kaupsamningar um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu 18. til og með 24. apríl voru 100 talsins. Fram kemur á vef Þjóðskrár að þar af hafi 77 verið um eignir í fjölbýli, 19 um sérbýli og fjórir samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði.

„Heildarveltan var 3.434 milljónir króna og meðalupphæð á samning 34,3 milljónir,“ segir í frétt Þjóðskrár.

Á sama tíma var tveimur kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum, tveimur í Árborg og sex á Akureyri. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×